Skákþing Norðlendinga – Brim-mótið

    0
    814
    Goðinn
    Hvenær:
    25. mars, 2022 @ 19:30 – 27. mars, 2022 @ 15:00
    2022-03-25T19:30:00-01:00
    2022-03-27T15:00:00+00:00
    Hvar:
    Framsýnarsalurinn
    Garðarsbraut 26
    Húsavík
    Ísland
    Gjald:
    4000
    Skákþing Norðlendinga - Brim-mótið @ Framsýnarsalurinn | Húsavík | Ísland

    Skákþing Norðlendinga 2022 og 4 mót BRIM-mótaraðarinnar verður haldið helgina 25-27 mars í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 Húsavík.

    Dagskrá:

    Föstudagurinn 25. mars klukkan 19:30
    1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5

    Laugardagurinn 26. mars klukkan 11:00 5. umferð, kappskák 90+30
    Laugardagurinn 26. mars klukkan 17:00 6. umferð, kappskák 90+30

    Sunnudagurinn 27. mars klukkan 11:00 7.umferð, kappskák 90+30

    Hraðskákmót Norðlendinga 2022 fer síðan fram á sama stað. Líklegt er að það hefjist ekki fyrr en um kl 15:30 á sunnudeginum. Ekkert þátttökugjald er í hraðskákmótið. Umferðafjöldi ræðst af keppendafjölda. Tímamörk 5 mín. (ekki viðbótartími)

    Eftirfarandi Oddastig (tiebreaks) gilda í móltinu: 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart

    Bæði mótin verða reiknað til FIDE skákstiga.

    Þáttökugjöld: 4000 kr.
    2000 kr. fyrir 16 ára og yngri
    Ókeypis fyrir GM/IM.

    Skráningarform

    Þegar skráðir keppendur

    30 fyrstu sem skrá sig til leiks fá keppnisrétt í mótinu þar sem Framsýnarsalurinn rúmar ekki meira en 15 borð. Aðrir fara á biðlista.

    Verðlaunafé í Skákþingi Norðlendinga. (einungis keppendur með lögheimili á Norðurlandi og skiptist jafnt á milli keppenda endi þeir jafnir að vinningum)

    1. sæti 40.000 kr
    2. sæti 20.000 kr
    3. sæti 10.000 kr

    Veitt verða eignarbikarar fyrir þrjá efstu (með lögheimili á Norðurlandi) og farandbikar handa Skákmeistara Norðlendinga 2022. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í unglingaflokki (16 ára og yngri með lögheimili á Norðurlandi). Þórleifur Karlsson varð skákmeistari Norðlendinga 2021 sem haldið var á Sauðárkróki.

    1. sæti í BRIM-mótinu (Ekki lögheimil á Norðurlandi) 30.000 kr

    Um verðlaunafé í BRIM-hlutanum má lesa hér fyrir neðan.

    ALMENN KYNNING Á BRIM MÓTARÖÐINNI: 
    TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR KYNNIR MEÐ STOLTI, Í SAMSTARFI MEÐ ÞREMUR FÉLÖGUM, SKÁKFÉLAGI AKUREYRAR, SKÁKFÉLAGI SELFOSS OG NÁGRENNIS OG SKÁKFÉLAGINU GOÐINN, BRIM SKÁKMÓTARÖÐINA 2020-2021!
    HALDIN VERÐA SEX HELGARSKÁKMÓT, ÞRJÚ Í TR, EITT Á NORÐURLANDI, EITT Á SELFOSSI OG EITT Á HÚSAVÍK. Á FÖSTUDEGI VERÐA TEFLDAR FJÓRAR ATSKÁKIR, Á LAUGARDEGI TVÆR KAPPSKÁKIR OG Á SUNNUDEGI EIN KAPPSKÁK.
    BRIM ER AÐALSTYRKTARAÐILI MÓTARAÐARINNAR ÁSAMT SKÁKSAMBANDI ÍSLANDS. KEPPT VERÐUR UM GLÆSILEG VERÐLAUN; 350.000 KRÓNA VERÐLAUNASJÓÐUR ER FYRIR BESTAN SAMANLAGÐAN ÁRANGUR. ÞAÐ VERÐUR STIGAKEPPNI ÞAR SEM FJÖGUR BESTU MÓT HVERS SKÁKMANNS GILDA.
    STIGAKEPPNIN VIRKAR ÞANNIG AÐ STIG ERU VEITT FYRIR EFSTU 10. SÆTIN. 1 STIG FYRIR 10. SÆTI, 2. STIG FYRIR 9. SÆTI OG SVO FRAMVEGIS. Í 1. SÆTI Í HVERJU MÓTI VERÐA HINS VEGAR 12 STIG VEITT. AUKASTIG FYRIR SIGUR Í HRAÐSKÁKMÓTINU EFTIR AÐALMÓTIÐ. STIGAKEPPNIR  MEÐ SAMA SNIÐI VERÐA EINNIG NOTAÐAR TIL AÐ REIKNA ÚT AUKAVERÐLAUNIN. FJÖGUR BESTU MÓT HVERS ÞÁTTAKANDA GILDA Í STIGAKEPPNINNI.

    SKÁKÞING NORÐLENDINGA 2022 ER STYRKT AF PCC BAKKISILIKON 
    BRIM-MÓTIÐ ER STYRKT AF BRIM ÚTGERÐARFÉLAGI

    ÞETTA SKÁKÞING NORÐLENDINGA VERÐUR ÞAÐ 88 Í RÖÐINNI, EN MÓTIÐ HEFUR VERIÐ HALDIÐ ÓSLITIÐ FRÁ ÁRINU 1935. ÞETTA VERÐUR SJÖTTA SKÁKÞING NORÐLENDINGA SEM SKÁKFÉLAGIÐ GOÐINN HELDUR. FYRSTA MÓTIÐ VAR HALDIÐ Á NARFASTÖÐUM Í REYKJADAL. ÞAÐ NÆSTA FÓR FRAM Á GAMLA BAUK Á HÚSAVÍK, SÍÐAN Í ÁRBÓT Í AÐALDAL. ÞAR Á EFTIR Í FRAMSÝNARSALNUM Á HÚSAVÍK OG SÍÐAN Á NETINU (TORNELO)
    - Auglýsing -