Garðarsbraut 26
Húsavík
Ísland

Skákþing Norðlendinga 2022 og 4 mót BRIM-mótaraðarinnar verður haldið helgina 25-27 mars í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26 Húsavík.
Dagskrá:
Föstudagurinn 25. mars klukkan 19:30
1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5
Laugardagurinn 26. mars klukkan 11:00 5. umferð, kappskák 90+30
Laugardagurinn 26. mars klukkan 17:00 6. umferð, kappskák 90+30
Sunnudagurinn 27. mars klukkan 11:00 7.umferð, kappskák 90+30
Hraðskákmót Norðlendinga 2022 fer síðan fram á sama stað. Líklegt er að það hefjist ekki fyrr en um kl 15:30 á sunnudeginum. Ekkert þátttökugjald er í hraðskákmótið. Umferðafjöldi ræðst af keppendafjölda. Tímamörk 5 mín. (ekki viðbótartími)
Eftirfarandi Oddastig (tiebreaks) gilda í móltinu: 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart
Bæði mótin verða reiknað til FIDE skákstiga.
Þáttökugjöld: 4000 kr.
2000 kr. fyrir 16 ára og yngri
Ókeypis fyrir GM/IM.
30 fyrstu sem skrá sig til leiks fá keppnisrétt í mótinu þar sem Framsýnarsalurinn rúmar ekki meira en 15 borð. Aðrir fara á biðlista.
Verðlaunafé í Skákþingi Norðlendinga. (einungis keppendur með lögheimili á Norðurlandi og skiptist jafnt á milli keppenda endi þeir jafnir að vinningum)
- sæti 40.000 kr
- sæti 20.000 kr
- sæti 10.000 kr
Veitt verða eignarbikarar fyrir þrjá efstu (með lögheimili á Norðurlandi) og farandbikar handa Skákmeistara Norðlendinga 2022. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í unglingaflokki (16 ára og yngri með lögheimili á Norðurlandi). Þórleifur Karlsson varð skákmeistari Norðlendinga 2021 sem haldið var á Sauðárkróki.
- sæti í BRIM-mótinu (Ekki lögheimil á Norðurlandi) 30.000 kr
Um verðlaunafé í BRIM-hlutanum má lesa hér fyrir neðan.










