Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) er heldur betur í stuði á EM einstaklinga í Terme Catez í Slóveníu. Hann vann þýska stórmeistarann Rasmus Svane (2637) í fjórðu umferð og er eins og er einn efstur með fullt hús! Hannes Hlífar Stefánsson (2520) vann hina ísraelsku Michelle Katkov (2149) og er í 56. sæti með 3 vinninga.
Fimmta umferð fer fram á morgun og hefst kl. 13. Þá teflir Gummi við armenska stórmeistarann Gabriel Sargissian (2681), sem er sjöundi í stigaröð keppenda. Hannes mætir serbneska stórmeistaranum Ivan Ivanisevic (2601).
Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.
















