Hannes að tafli. Mynd: Heimasíða Cerme mótsins 2022.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2520) vann serbneska stórmeistarann Ivan Ivanisevic (2601) í fimmtu umferð EM einstaklinga sem fram fór í gær. Hannes hefur 4 vinninga og er í 6.-23. sæti ásamt Guðmundi Kjartanssyni (2450) sem tapaði í gær fyrir armenska stórmeistaranum Gabriel Sargissian (2681).

Gummi tapaði fyrir Sargissian í gær. Mynd: Heimasíða mótsins.

Sjötta umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Gummi heldur sig við armenska stórmeistara og teflir í dag við Haik Martirosyan (2633). Hannes mætir tyrkneska stórmeistaranum Mustafa Yilmaz (2624).

Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar.  20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.

 

- Auglýsing -