Kviku Reykjavíkurskákmótið hófst í dag þegar fyrsta umferð fór fram í Hörpu. 245 keppendur eru mættir til leiks hvaðanæva að úr heiminum. Alls eru 39 þjöðlönd sem hafa fulltrúa á mótinu og stórmeistararnir eru alls 22.
Dagur B. Eggertsson opnaði mótið þegar hann lék fyrsta leiknum fyrir stigahæsta keppandann, Idani Pouya frá Íran sem skartar 2638 skákstigum.

Lítið var um óvænt úrslit í fyrstu umferð en tveir ungir íslenskir skákmenn náðu jafntefli gegn stórmeisturum. Alexander Oliver Mai náði að halda jöfnu gegn yngsta stórmeistara heims, Abhimanyu Mishra. Birkir Ísak Jóhannsson gerði svo jafntefli við úkraínsku goðsögnina Oleg Romanishin.
Vignir Vatnar opnaði mótið á góðum sigri á Áskeli Erni Kárasyni. Vignir hefur verið einn okkar heitasti skákmaður undanfarið og verður gaman að sjá hvað hann gerir á mótinu.
Í annarri umferð mætir Hilmir Freyr fyrrverandi sigurvegara mótsins, Abhijeet Gupta. Sigurbjörn Björnsson mætir hinum skeinuhætta Alexander Fier. Vignir teflir aftur niður fyrir sig og mætir enska FIDE meistaranum Peter Sowray. Alexander Oliver reynir að fylgja eftir góðum úrslitum í fyrstu umferðinni þegar hann mætir „GingerGM“ Simon Williams. Simon sat hjá í fyrstu umferð og spurning hvort hann verði laus við flugþreytuna! Birkir Ísak mætir Tönyu Sachdev.
- Auglýsing -

















