Landsliðsliðsflokkur Íslandsmótsins í skák hófst í dag við mjög góðar aðstæður í  Bankanum- Vinnustofu á Selfossi, sem var nýlega opnuð.

Tíu keppendur eru mættir til leiks í lokuðum flokki og þar af sex stórmeistarar. Fyrsta umferðin bauð upp á mjög skemmtilega pörun þar sem sex stigahæstu andstæðingarnir tefldu allir innbyrðis!

Fyrsta skákin af þeim til að klárast var skák Evrópumótsfaranna Hannesar Hlífars Stefánssonar og Guðmundar Kjartanssonar. Guðmundur lék mjög slökum leik snemma tafls, 14…d5??

Hvíta staðan sprakk út og eftir 15.cxd5 exd5 16.e5 Rg8 17.e6 fxe6 18.Rg5 var hvítur einfaldlega að vinna skiptamun.

Símon Þórhallsson tefldi sína fyrstu skák í landsliðsflokki. Hann komst vel frá sinni eldskírn og gerði jafntefli eftir þráskák gegn Braga Þorfinnssyni.

Bragi var kannski fastur í „King of the Hill“ varíantnum en hann var kominn með kóng sinn á miðborðið í 22. leik!

Skákin í heild:

Alexander Oliver Mai hefur væntanlega ekki verið sáttur með sína skák í dag. „Ítala-skákmenn“ verða að kunna góð skil á hvenær er hægt að leika g5, hvenær er hægt að taka og hvenær ekki. Tíundi leikur hvíts, 10.Rd5 var slakur og framhaldið 11.Rxg5? hreinlega tapað á hvítt.

Ef til vill missti Alexander af því í stöðunni hér…

…að hvorki 14.Rxf8 né 14.exd5 Kxh7 ganga upp vegna …Bg4 hjá svörtu og drottningin á engan reit. Hilmir átti ekki í vandræðum með að vinna manni yfir.

Sviptingasamasta skákin var tvímælalaust skák Héðins og Vignis. Vignir virtist vel undirbúinn og tefldi mest alla skákina skínandi vel. Menn hvíts urðu passífari og passífari og það leit út fyrir að lokasóknin væri framundan. Vignir lagði öll spilin á borðið og fórnaði hrók

37…Hxh4?? þessi fórn reyndist einfaldlega ekki ganga upp og í mjög góðri, hartnær unninni stöðu (skv. tölvuforritum) þá snerist taflið algjörlega við. Svekkjandi tap hjá Vigni og heilladísirnar voru Héðins megin að þessu sinni.

Síðasta skákin til að klárast var svo stórmeistaraslagur Hjörvars Steins Grétarssonar og Þrastar Þórhallssonar. Hjörvar virtist með skínandi sóknarstöðu eftir byrjunina. Niðurstaðan varð peðsvinningur en Þröstur varðist af krafti. Þegar Hjörvar gafst upp á að nýta umframpeðið virtist sem Þröstur ætlaði að tefla til vinnings! Á endanum varð jafntefli niðurstaðan í skemmtilegri skák.

Skákirnar verða sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannesson hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.

Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.

Skákvarp 1. umferðar:

 

- Auglýsing -