Hannes Hlífar Stefánsson er einn með fullt hús eftir tvær umferðir á Skákþingi Íslands, Íslandsmótinu í skák sem fer fram í Bankanum- Vinnustofu á Selfossi.
Hannes var sá eini sem tókst að vinna sína skák í umferð dagsins en hann lagði Símon Þórhallsson að velli. Símon lenti í basli í miðtaflinu og tapaði skiptamun. Í kjölfarið losnaði hann ekki við hættuegan frelsingja Hannesar og tap varð nokkuð snemma niðurstaðan.
Skák Hilmis Freys Heimissonar og Héðins Steingrímssonar endaði með jafntefli. Hilmir virtist fá fína pressu með hvítu en í miðtaflinu var Héðinn að snúa taflinu sér í vil með mjög góðri taflmennsku þegar Hilmir fékk færi á fléttu til að einfalda taflið í jafntefli.
39.Hxf6! kom á borðið og jafnteflið var tryggt.
Guðmundur Kjartansson fékk mun betra tafl gegn Vigni Vatnari og hefði átt að klára dæmið. Í tímahraki lék Guðmundur vænlegu endatafli niður í 40. leik. 40.Hh4? gaf Vigni kost á laglegri björgun.
41…Hxf2! bjargaði skákinni þar sem 42.Kxf2 g3 einfaldar svörtum í hag. Í lokin kom svo skemmtilegt patt þema.
65…Hf6+ skemmtileg leið og Guðmundur sætti sig við jafntefli með því að patta nokkrum leikjum síðar 66.Ke7 He6+ 67.Kxe6.
Þröstur Þórhallsson náði einhverri pressu í miðtaflinu gegn Alexander Oliver en valdi ekki bestu leiðina. Skákin hálf fjaraði út í kjölfarið.
Loks skyldu stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson og Hjörvar Steinn Grétarsson jafnir eftir lengstu skák umferðarinnar. Hjörvar aftur með betra miðtafl en eins og í gær náði hann ekki að finna afgerandi leið til að klára skákina. Byrjunin nokkuð óvænt en Hjörvar beitti franskri vörn sem hann hefur ekki oft gert.
Í þriðju umferð mætast Hjörvar með hvítt og Hannes í mikilvægri skák fyrir framvindu mótsins.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 2. umferðar:
















