Þriðja umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 14. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.
Forystusauðurinn, Hannes Hlífar Stefánsson, teflir við stigahæsta keppenda mótsins, Hjörvar Steinn Grétarsson. Viðureignirnar dagsins eru sem hér segir:
- Hjörvar Steinn Grétarsson (1) – Hannes Hlífar Stefánsson (2)
- Héðinn Steingrímsson (1½) – Þröstur Þórhallsson (1)
- Vignir Vatnar Stefánsson (½) – Hilmir Freyr Heimisson (1½)
- Alexander Oliveri Mai (½) – Bragi Þorfinnsson (1)
- Símon Þórhallsson (½) – Guðmundur Kjartansson (½)
Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því um kl. 15 í dag.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
- Auglýsing -
















