Hjörvar Steinn Grétarsson er orðinn einn efstur á Íslandsmótinu í skák sem fram fer í Bankanum Vinnustofu á Selfossi. Hjörvar lagði að velli Alexander Oliver Mai en á meðan varð Hannes Hlífar Stefánsson að sætta sig við skiptan hlut gegn Vigni Vatnari Stefánssyni.
Sigur Hjörvars gegn Alexander var góður, Hjörvar nostraði við stöðuyfirburði sína og vélaði Alexander jafnt og þétt niður. Týpískur Hjörvars sigur sem virkar áreynslulítill.
Hannes og Vignir tefldu maraþonskák, Vignir reyndi fram í rauðan dauðan að halda í síðasta sénsinn á því að ná í stórmeistaraáfanga á þessu móti. Jafnteflið var hinsvegar einhvern veginn aldrei í hættu. Vignir á enn möguleika á titlinum ef hann vinnur þrjár síðustu skákir sínar.
Héðinn Steingrímsson náði að jafna Hannes í 2. sætinu með því að leggja Símon Þórhallsson að velli. Símon tapaði peði tiltölulega snemma í miðtaflinu og fékk ekki nægjanlegar bætur. Þegar hann vann loks peðið til baka var staðan einfaldlega orðin of slæm og Héðinn kláraði dæmið með einfaldri fléttu.
Guðmundur Kjartansson og Þröstur Þórhallsson skildu jafnir í tíðindalítilli skák. Þröstur stóð aðeins betur í endataflinu en náði ekki að nýta sér það.
Loks lagði Hilmir Freyr Heimisson stórmeistarann Braga Þorfinnsson að velli. Slök skák hjá Braga sem hann vill væntanlega gleyma sem fyrst!
Stöðutaflan eftir 6 umferðir

Mikil spenna á toppnum eins og áður segir og ljóst að lokaumferðirnar verða æsispennandi!

Héðinn og Hjörvar mætast í algjörri lykilskák í 7. umferðinni. Umferðin hefst 16:00 og útsending með skýringum laust eftir klukkan 1700.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 6. umferðar:

















