Indverski stórmeistarinn Vishy Anand (2761) er efstur á Norway Chess að lokinni fimmtu umferð sem fram fór í gær. Indverjinn og heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2864), voru efstir og jafnir fyrir skákina, gerðu jafntefli en svo vann Anand bráðabanann. Fyrir það fékk hann auka hálft stig. Wesley So og Shakhriyar Mamedyarov eru skammt undan.

Sjötta umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við Mamedyarov en Anand mætir Anish Giri.
Fyrirkomulagið er þannig að tefld er kappskák. Sigurvegarinn fær 3 stig. Geri keppendur jafntefli fá báðir 1 stig. Þá eru tefldur bráðabani og fær sigurvegarinn auka hálft stig. Keppendalistinn er áhugaverður. Vegna áskorendamótsins í Madrid sem hefst 17. júní tefla áskorendurnir ekki á Norway Chess að Radjabov undanskildum.














