Caruana vann Firouzja. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Ýmislegt bendir til þess að endurtekið efni sé að eiga sér stað á áskorendadmótinu í skák. Áskorandinn verði annað hvort sé sami og 2021 (Nepo) eða 2018 (Caruana). Mun Carlsen standa við stóru orðin og gefa frá heimsmeistaratitilinn á næsta ári án taflmennsku?

Ian Nepomniachtchi vann Pólverjann Jan-Krzysztof Duda (2750) í gær. Á meðan lagði Fabi íranska Frakkann Alireza Firouzja (2793) að velli. Öðrum skákum lauk með jafntefli en eftir hörkuviðureignir.

Nepo vann Duda í gær. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Nepo hefur 4½, Fabi hefur 4 vinninga. Hikaru Nakamura (2760) og Richard Rapoort (2764) eru næstir með 3 vinninga.

Frídagur er í dag. Sjöunda umferð fer fram á morgun. Þá teflir Nepo við Rapport og Caruana við Radjabov (2753).

Sjá nánar frétt á Chess.com.

 

- Auglýsing -