Guðmundar Ingva mótið í skák

    0
    667
    Guðmundur Ingvi til hægri á myndinni.
    Hvenær:
    31. júlí, 2022 @ 13:00 – 16:00
    2022-07-31T13:00:00+00:00
    2022-07-31T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Egilsstaðir
    Egilsstaðir
    Ísland
    Tengiliður:
    Sverrir Gestsson
    822-1748
    Guðmundar Ingva mótið í skák @ Egilsstaðir | Egilsstaðir | Ísland
    Þann 27. júlí næstkomandi verður Guðmundur Ingvi Jóhannsson formaður Skáksambands Austurlands áttræður. Guðmundur Ingvi hefur um langt árabil verið einn ötulasti skákmaður og skipuleggjandi taflmennsku á Austurlandi.
    Í tilefni þessara tímamóta verður blásið til skákmóts sunnudaginn 31. júlí og hefst það kl. 13. Teflt verður á Egilsstöðum en mótsstaður hefur ekki verið ákveðinn en hann ræðst af fjölda þátttakenda. Umhugsunartími verður 15 mínútur á mann og stefnt að því að hafa 7 umferðir en það ræðst þó einnig af fjölda þátttakenda.
    Áhugasamir eru beðnir að tilkynna þátttöku til Sverris Gestssonar í síma 822-1748 eða á netfangið sverrirg57@gmail.com.
    - Auglýsing -