Alþjóðlega mótinu í Piestany í Slóvakíu lauk í gær. Helgi Áss og Vignir Vatnar enduðu með 5 vinninga. NM í skák hófst í gær og hóf Héðinn mótið með sigri. Tvær umferðir eru tefldar í dag.
Slovakia Open Piestany
Níunda og síðasta umferð fór fram í gær.
Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerði jafntefli en Helgi Áss Grétarsson og Alexandr Domalchuk-Jonasson (2246) töpuðu báðir.
Helgi Áss og Vignir Vatnar hlutu 5 vinninga en Aleksandr hlaut 3 vinninga.
Allir lækkuðu á stigum, Helgi um 8 stig, Vignir um 15 stig og Aleksandr um 70 stig eftir tap í þremur síðustu umferðunum.
Mótið var lokaundirbúningur Helga og Vignis fyrir Ólympíuskákmótið en Aleksandr heldur til Tékklands þar sem hann teflir á Czech Open.
64 skákmenn frá 13 löndum tóku þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fór fram 11.-18. júlí.
NM í skák
Norðurlandamótið í skák hófst í gær í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið er haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins.
Héðinn Steingrímsson (2513) vann stigalágan Finna (1872) í fyrstu umferð í gær.
Tvær umferðir eru tefldar í dag og hófst fyrri skák dagsins kl. 7 í morgun. Héðinn teflir þá við Svíann Seo Jung Hyun (2102).
Þátt taka 138 skákmenn frá 14 löndum Þar af 10 stórmeistarar og 9 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er áttundi í stigaröð keppenda og næststigahæstur Norðurlandabúa. Mótið fer fram 18.-24. júlí.
Björgvin Jónas Hauksson (1739) í teflir í öldungaflokki (50+) og tapaði í fyrstu umferð.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast ýmist kl. 7, 9 eða 14).
Ciudad de Sevilla
Fjórða umferð fór fram í gær.
Alexander Oliver Mai (2159) tapaði og hefur 2 vinninga.
Fimmta umferð fer fram í dag.
Þátt taka 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af eru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 16.-23. júlí.















