Íslenska sveitin í opnum flokki hafði sigur á Zambíu 3,5 – 0,5 í 6. umferð Ólympíumótsins. Stigalágir Zambíumenn höfðu vakið athygli á mótinu eftir sigur gegn sterkum sveitum Danmerkur og Egyptalands, fyrr í mótinu. Hjörvar Steinn fór fyrir liðinu og var fyrstur að landa vinningi eftir spennandi skák á 1. borði. Hannes Hlífar þurfti að sætta sig við jafntefli með svörtu mönnunum á 2. borði, eftir að hafa staðið vel framan af. Guðmundur hafði sigur á 3. borði eftir mikla baráttu og tryggði um leið sigurinn í viðureigninni. Helgi Áss innsiglaði svo fín úrslit með sigri með svörtu á 4. borði. Zambíumenn börðust eins og ljón og íslenska sveitin þurfti að hafa töluvert fyrir þessum stóra sigri.

Í kvennaflokki tapaði íslenska sveitin gegn þeirri indónesísku, 0-4. Framan af litu stöðurnar ágætlega út en eftir slæman afleik Lenku á 1. borði fór að halla mjög á íslenska liðið. Hallgerður Helga valdi ranga leikjaröð í byrjuninni og tapaði um síðir. Liss lenti einnig í vandræðum í miðtaflinu, náði ekki að losa sig undan pressunni á kóngsvæng, og tapaði. Jóhanna Björg tefldi vel og jafnaði taflið eftir byrjunina. Í framhaldinu barðist hún fyrir því að koma íslenska liðinu á blað en hafði því miður ekki erindi sem erfiði og 4-0 tap í viðureigninni staðreynd.

Að lokinni 6. umferð er íslenska sveitin í opnum flokki í 49. sæti en kvennaliðið í 80. sæti.
Á morgun, fimmtudaginn 4. ágúst, er frídagur á mótinu.
Andstæðingar Íslands í 7. umferð, sem fram fer föstudaginn 5. ágúst, verða Ekvador í opnum flokki og Tajikistan í kvennaflokki.

Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson
  2. Hannes Hlífar Stefánsson
  3. Guðmundur Kjartansson
  4. Helgi Áss Grétarsson
  5. Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)

Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.

Kvennaliðið

  1. Lenka Ptácníková
  2. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
  3. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  4. Lisseth Acevedo Mendez
  5. Tinna Kristín Finnbogadóttir

Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson

Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.

- Auglýsing -