Ólympíuskákmótið er nú rétt rúmlega hálfnað og liðin sátt við að fá frídag fyrir lokaátökin. Í 6. umferðinni í fyrradag var gengi liðanna svolítið eins og svart og hvítt þar sem of stórt tap varð staðreynd hjá kvennaliðinu en í opnum flokki vannst góður og stór sigur á spútnikliði Zambíu.

Opinn flokkur – Zambía

Lið Zambíu er nokkuð stigalægra en okkar lið, númer 73 í stigaröð gegn 43 hjá okkar strákum. Hinsvegar hafði Zambía þegar lagt að velli lið Dana og Egypta! Eins og mörg lið frá Afríku hafa þeir hæfileikaríka skákmenn en oft menn sem vantar meiri skóla og aga.

Hjörvar tefldi hvasst á efsta borði. Plan A er oft að máta andstæðinginn og Hjörvar tefldi stíft upp á það með dýnamískri taflmennsku. Hættan við slíka taflmennsku getur verið að andstæðingurinn fær sína sénsa oft á tíðum. Hjörvar hafði þó betur í flækjunum en á tímabili var Zambíumaðurinn langt kominn með að snúa taflinu sér í vil. Styrkurinn og reynslan var þó Hjörvars megin að þessu sinni.

Á öðru borði var Hannes örugglega búinn að jafna taflið nokkurn veginn í miðtaflinu þegar Zambíumaðurinn fór í skiptamunsfórn sem var nokkuð menntuð og athyglisverð. Hannes varðist dýnamískum tilburðum hvíts og líklega hefði það átt að skila vinningi með nákvæmustu taflmennsku. Zambíumaðurinn náði að lokum að bjarga jafntefilnu.

Guðmundur náði að kreysta fram endatafl eftir nokkrar flækjur þar sem hann var peði yfir. Líklegast nægði umframpeðið ekki til vinnings með bestu taflmennsku vegna mislitra biskupa. Hinsvegar opnaðist hurðin á íslenskan sigur þegar Gummi trikkaði af andstæðingnum peðið á e6.

Helgi Áss sýndi mikla og góða þolinmæði og skilaði sínum vinningi í hús með vel útfærðri skák.

Niðurstaðan 3,5-0,5, stórsigur sem gæti komið sér vel þegar kemur að útreikningi oddastigi í lokin. Með óheppni í ákveðnum stöðum hefði þessi viðureign hæglega getað verið mjög jöfn en allt datt vel með okkur að þessu sinni.

Kvennaflokkur – Indónesía

Viðureignin við Indónesíu í kvennaflokki gekk ekki vel og fínt að fá frídaginn til að hlaða batterín og gleyma þessum skell. Nánast ekkert gekk upp í þessari viðureign.

Lenka hefur teflt vel á mótinu og skorað vel en í skákinni í dag lenti hún einfaldlega í einhverskonar skákblindu þegar hún tók peð á d5 og lenti í taktík sem hún og flestir þekkja vel. Svona slys einfaldlega gerast af og til og lítið annað að gera en segja áfram gakk.

Á öðru borði tefldi Jóhanna í raun einu almennilegu skák okkar í þessari umferð og veitti andstæðingi sínum verðuga mótspyrnu með góðri taflmennsku lengi vel í skákinni. Andstæðingur Jóhönnu var hinsvegar enginn auli og tefldi mjög þétt stöðulega og stundum er skák bara þannig, þú teflir vel en andstæðingurinn betur.

Hallgerður lenti í vandræðum í byrjuninni sem er frekar óvenjulegt en hún þekkti ekki nógu vel afbrigðið sem andstæðingur hennar tefldi. Staðan varð fljótt erfitt hjá hvítum og lið tapaðist nokkuð snemma og skákin erfið eftir það.

Andstæðingur Liss teflir nánast bara London „systemið“ með hvítu. Fyrsta borð Indónesíu er mikill vinur Eric Rosen sem er einn helsti sérfræðingur YouTube í London kerfinu. Það var því nokkuð vitað að hún kynni sitthvað fyrir sér í London. Nokkur af þeim afbrigðum sem mig langaði að mæla með hafði hún greinilega vel á hreinu og loks ákváðum við að fara í eitt aðalafbrigðið sem á að standa þokkalega á svart en hvítur fær samt mjög hættulegar stöðulegar bætur. Það kom á daginn að Citra með hvítu þekki afbrigðið vel og tefldi af miklum krafti.

Óþarflega stórt tap en þær indónesísku voru stigahærri á öllum borðum og eru klárlega framar en við í skáklistinni. Uppgangurinn þar í landi er reyndar nokkur í skákinni.

Frídagurinn

Frídagurinn í gær var nýttur til þess að brjóta upp „lobbý-dauðann“ svokallaða. Tilbreytingar var þörf og allir í liðinu fóru í skoðunarferð um indversk hof á svæðinu, ágætis túr og tilbreyting.

Kvöldið eftir 6. umferð var Bermuda partýið svokallaða sem alltaf fer fram kvöldið fyrir frídaginn. Mikið var um dýrðir eins og oft áður. Í Bermuda partýunum er ýmist boðið upp á skemmtiatriði, veitingar og/eða bæði. Í byrjun var boðið upp á tónlistaratriði og mjög girnilegar veitingar, heitar pönnur voru reyndar ekki beint að minnka hitastigið á svæðinu og var stemmningin því frekar sveitt á köflum.

Fréttaritarar Skak.is komust að ýmsum krassandi sögum um gang mála þegar líða tók á partýið en því miður er reglan „What happens at the Bermuda party, stays at the Bermuda party“

Seinni hluti mótsins er kominn í gang og nú fer að verða mikilvægt að ná góðum úrslitum og enda vel til að ná góðu lokasæti. Í opnum flokki fáum við Ekvador og Tajikistan í kvennaflokki. Raunhæft er að setja kröfu á tvöfaldan íslenskan sigur í dag!

- Auglýsing -