Íslenska sveitin í opnum flokki hafði sigur á Ekvador 2,5 – 1,5 í 7. umferð Ólympíumótsins. Guðmundur Kjartansson vann sigur en aðrir gerðu jafntefli. Viðureignin var líklegast aldrei í hættu og ábyrg taflmennska liðsmanna i þessari viðureign skilaði sigri með minnsta mun. Íslenska liðið hefur nú 10 stig af 14 mögulegum eftir umferðirnar sjö.

Í kvennaflokki gerði íslenska sveitin jafntefli gegn sveit Tajikistan 2-2. Nokkrar sveiflur voru í viðureigninni og á tíma leit út fyrir tap en Hallgerður bjargaði sinni skák og reddaði jafnteflinu.

Að lokinni 7. umferð er íslenska sveitin í opnum flokki í 14-32. sæti en kvennaliðið í 71-88 sæti.

Andstæðingar Íslands í 8. umferð verða Serbar í opnum flokki og Guatemala í kvennaflokki.

Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson
  2. Hannes Hlífar Stefánsson
  3. Guðmundur Kjartansson
  4. Helgi Áss Grétarsson
  5. Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)

Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.

Kvennaliðið

  1. Lenka Ptácníková
  2. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
  3. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  4. Lisseth Acevedo Mendez
  5. Tinna Kristín Finnbogadóttir

Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson

Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.

- Auglýsing -