Úrslit íslensku sveitanna voru nokkurn veginn eftir bókinni í 5. umferð. Íslenska liðið í opnum flokki þurfti að eiga við mjög sterkt lið Króatíu með hinn gríðarsterka Ivan Saric á fysta borði. 1-3 tap varð niðurstaðan í erfiðri viðureign. Kvennaliðið var sterkara á pappír fyrirfram og sannaði það með 3-1 sigri gegn Wales.
Opinn flokkur – Króatía

Erfitt verkefni þar sem lið Króata er nr. 17 í stigaröðinni. Á fyrsta borði er hinn grjótharði Ivan Saric sem nálgast 2700 stiga múrinn óðflug. Á góðum degi er þetta hinsvegar sveit sem við eigum að geta staðið í og náð úrslitum gegn ef allir eru að tefla vel.

Á efsta borði fékk Hjörvar erfitt verkefni gegn fyrrnefndum Saric. Saric er mikið teóríuhross eins og menn kalla það stundum og á t.d. Chessable námskeið um Be3 í Najdorf á hvítt. Hjörvar tefldi Najdorfinn mjög vel gegn Indlandi 3 og ákvað að endurtaka leikinn. Mikil vinna að tefla Najdrofinn og Hjörvar var vel undirbúinn en engu að síður kom Saric honum líklega örlítið á óvart í h3 línunni. Saric tefldi af fítonskrafti og gaf Hjörvari engan grið í þessari skák.
Hannes fékk aldrei nóg frumkvæði í skák sinni gegn Brkic til að tefla til sigurs. Skákin einfaldaðist tiltölulega fljótlega og jafntefli niðurstaðan.
Guðmundur tefldi langt endatafl gegn Kozul en hvorugur virtist í mikilli hættu á að vinna skákina og jafntefli eðlileg niðurstaða.
Helgi Áss var með betra tafl framan af en missti aðeins þráðinn. Bosiocic virtist jafna taflið en Helgi þurfti að leggja of mikið á stöðuna út af stöunni í viðureigninni og tapaði en hefði líklegast náð jafntefli auðveldlega undir öðrum kringumstæðum.
Sveitin í opna flokknum er á ágætis róli, vinnur þær viðureignir sem þeir eiga að vinna en gaman væri að sjá liðið ná góðum úrslitum gegn sterkari sveit. Fyrst þarf að leggja lið Zambíu í 6. umferðinni. Zambía lagði Dani og það lið má ekki vanmeta.


Kvennaflokkur – Wales

Á pappírnum vorum við sterkari en lið Wales en kvennaliðð var aldrei að fara að vanmeta sveit Wales enda með ungar stelpur í liðinu. Við höfum lent í mjög „underrated“ liðum og ljóst að margir eiga inni verulegar stigahækkanir.
Liss setti tóninn á 4. borði. Hún fór í sókn gegn hinni ungu Khusi Bagga sem lét það eitthvað bögga sig og réði ekki neitt við neitt.
Jóhanna fékk fínt tafl úr byrjuninni enda var auðvelt að undirbúa gegn frekar slökum varíanti í Skandinavanum sem sú frá Wales teflir alltaf. Eitthvað fór úrskeiðis í miðtaflinu, nokkrir bitlausir leikir og allt í einu var Chong kominn með fína stöðu. Skák þar sem erfitt var að sjá algjörlega klár mistök, meira að nokkrir ónákvæmir leikir lögðust á eitt og hvíta staðan molnaði.
Lenka fékk eitthvað verra eftir byrjunina en sýndi styrkleika sinn í miðtaflinu. Á einum punkti eftir 28.Dh5 hefði Lenka getað þvingað jafntefli með Hxb4 en mat það rétt að hún stæði betur og lítil áhætta í stöðunni. Fór og svo að Lenka yfirspilaði sinn andstæiðng og staðan orðin 2-1
Það kom því í hlut Hallgerðar að tryggja sigurinn. Hún tefldi mjög öruggt og gaf lítil færi á sér og fann flotta leiki til að halda frumkvæðinu gangandi. 40…He4!? rétt fyrir tímamörkin var „clutch“ leikur eins og þeir kalla það í körfuboltanum.
Flottur 3-1 sigur að þessu sinni.

Framundan er erfið viðureign gegn Indónesum sem hafa stigaháar stelpur og sterkt lið með Irene Sukandar á efsta borði.

















