Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
Kristófer Orri Guðmundsson stefnir ekki bara að Þriðjudagsmótaþrennu, heldur lítur út fyrir að hann verði ótvíræður Sumarþriðjudagsmeistari 2022! Það kemur væntanlega í ljós eftr verslunarmannahelgina. Aftur var mæting með ágætum og mörg ný og gömul andlit sáust, auk þess sem tveir Íranir ljáðu mótinu alþjóðlegt yfirbragð. Í öðru sæti varð Aðalsteinn Thorarensen í harðri baráttu við Arnar Inga Njarðarson en jafntefli í síðustu umferð kostaði þann síðarnefnda að líkindum það sæti. Þriðja sætinu náði hins vegar Hjálmar Sigurvaldason sem vann síðustu fjórar eftir óvænt tap í fyrstu umferð. Efstur á frammistöðustigum varð síðan Hörður Jónasson sem hlýtur þannig, ásamt sigurvegaranum, verðlaunainnborgun hjá Skákbúðinni.
Öll úrslit og stöðu Þriðjudagsmótsins má annars nálgast hér á chess-results.
Næsta Þriðjudagsmót verður samkvæmt sumarskipulagi 2. ágúst n.k. þ.e. daginn eftir verslunarmannahelgi og hefst, að vanda, stundvíslega klukkan 19:30 í Skákhöll TR í Faxafeni. Fimm umferðir; 10 mínútur og 5 sekúndna viðbótartími.














