Lið Íslands í kvennaflokki vann sigur á Wales í 5. umferð Ólympíuskákmótsins í Chennai í Indlandi.
Liss Acevedo Mendez braut ísinn með öruggum sóknarsigri á 4. borði. Lenka Ptácniková hafði einnig sigur í vel útfærðri skák á 1. borði. Jóhanna Björg tapaði á 2. borði en Hallgerður Helga hafði að lokum sigur í sinni skák á 3. borði, með mikilli þolinmæði, og tryggði íslensku sveitinni 3-1 sigur í viðureigninni.

Lið Íslands í opnum flokki tapaði 1-3 gegn þéttri sveit Króatíu. Hjörvar Steinn Grétarsson og Helgi Áss Grétarsson töpuðu sínum skákum á 1. og 4. borði. Hannes Hlífar gerði tíðindalítið jafntefli á 2. borði. Guðmundur Kjartansson gerði heiðarlega tilraun til þess að leggja reynsluboltann Zdenko Kozul að velli á 3. borði í maraþonskák en hafði því miður ekki erindi sem erfiði og lauk skákinni með jafntefli að lokum.

Andstæðingar Íslands í 6. umferð, sem fram fer á morgun 3. ágúst, verða sveit Zambíu í opnum flokki og Indónesíu í kvennaflokki. Zambía hefur vakið athygli á mótinu með sigri gegn Dönum og Egyptum.
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)

















