Íslensku liðin unnu bæði 3-1 sigur gegn andstæðingum frá Afríku í 4. umferðinni. Leiðin til fyrirheitna landsins var hinsvegar ansi mismunandi hjá liðunum. Sigurinn í opnum flokki var nokkuð öruggur en í kvennaflokki þurfti að fljúga í gegnum smá ókyrrð til að komast á áfangastað!

Opinn flokkur – Nígería

Nígeríumenn eru númer 78 í stigaröð liða og því nokkuð fyrir neðan okkur. Þeir eru hinsvegar með reynda skákmenn sem geta verið brögðóttir.

Hannes var fyrstur að klára og fékk auðveldan dag á skrifstofunni. Hannes fékk „Fréttablaðsleik“ snemma tafl sem vann lið og andstæðingur hans sá enga ástæðu til að berjast áfram.

Helgi Áss kom okkur í 2-0 með vel útfærðri skák með hvítu mönnunum. Svartur tefldi af of mikilli bjartsýni og hugði ekki að eigin vörnum. Þegar sá nígeríski var að verða mát tók hann sér góða pásu til að leika. Kannski vildi hann vera lengur í salnum að skoða og kannski vildi hann ekki draga kjark úr sínum liðsmönnum fyrir tímahrakið. Á endanum lagði hann þó niður vopn en þetta truflaði Helga ekki neitt.

Andstæður Margeirs reyndi lítið en Margeir náði ekki að kreysta neitt úr stöðunni en jafnaði taflið auðveldlega í byrjuninni. Jafntefli var samið og sigur í viðureigninni tryggður.

Rússibana skák Guðmundar var síðust að klárast. Sá nígeríski fór „all-in“ á kóng Guðmundar og fórnaði manni. Menn svarts stóðu einstaklega illa og hvítur missti af nokkrum vinningsleiðum sérstaklega eftir tímamörkin. Guðmundur náði að standa af sér árásirnar og tryggja jafntefli í skákinni og 3-1 sigur í viðureigninni.

 

Kvennaflokkur – Mozambique

Mozambique eru nr. 109 í stigaröð og ættu að líta út eins og skyldusigur á pappír. Það hefði Thailand líka átt að vera en báðar sveitir voru með mun hvassara bit en ætla mætti.

Tinna var fyrst að klára. Staðan var fín á hvítt út úr byrjuninni en of margir andstöðulegir peðsleikir gerðu hvíta stðuna mun verri og Tinna fékk fljótt óteflanlega stöðu og tapaði.

Lenka jafnaði metin með nokkuð þéttum sigri. Lenka tefldi af öryggi og nýtti sér taktísk fær þegar þau gáfust. 1-1 staðan.

Skák Liss var næst að klárast. Liss kom okkur í 2-1 en lengi vel leit sú skák ekki vel út. Svartur fór í léleg uppskipti á biskup fyrir riddara í byrjuninni og fékk strategískt tapað tafl snemma í byrjuninni. Stúlkan frá Mozambique tefla ágætlega í kjölfarið þrátt fyrir að leika nokkrum óþarfa leikjum en sem betur fer fór hún í léleg uppskipti og gaf góðan riddara fyrir biskup Liss sem losaði jafnframt tvípeðið slæma. Liss náði svo að yfirspila þá afrísku í hróksendataflinu.

Viðureignin réðist því á 2. borði. Þar fékk Jóhanna fína stöðu úr byrjuninni en einhvern veginn tókst svörtum ekki að nýta sér stöðuyfirburðina. Vilhete með hvítu hélt vel í horfið og náði svo að hrifsa peð sem Jóhanna gleymdi oní. Sem betur fer voru bæturnar alltaf fínar með mislita biskupa en hvítur átti þó ágætis færi á að gera svörtum lífið leitt með vel tímasettum f4 leik.

Í miklu tímahraki hjá báðum í lokin á langri skák sleppti stelpan frá Mozambique drottningu sinni á d7 reitnum og hreinlega gleymdi að hún var mát í einum leik. Klaufaleg mistök en við tökum við því fegins hendi! Jafnteflið hefði átt að vera tryggt hvort eð er og því sigur í viðureigninni. En 3-1 niðurstaðan!

Næst á dagskrá er sveit Króata í opnum flokki í „aðal salnum“ og sveit Wales í kvennaflokki.

- Auglýsing -