Íslenska liðið í opna flokki hélt áfram fínu róli með sigri á Ekvardor í sinni viðureign. Kvennaliðið gerði jafntefli við lið Tajikistan en um tíma leit út fyrir að sú viðureign myndi tapast.

Opinn flokkur – Ekvador

Hjörvar hafði hvítt og tefldi traust upp á tvö úrslit gegn drottningarbragði. Matamoros hélt velli að þessu sinni og jafntefli niðurstaðan.

Skák Hannesar fór aldrei á mikið flug og jafntefli með svörtu virtust alltaf líklegustu úrslitin.

Það kom í hlut Guðmundar að tryggja vinninginn í viðureigninni. Guðmundur vann peð í byrjuninni en var í staðinn með verri peðastrúktúr. Gummi náði að vinna vel úr stöðunni og landa sigrinum í mjög „gummalegri“ skák.

Helgi tefldi mjög traust fyrir liðið en að jafnaði hefði hann viljað rugga bátnum meira gegn svona stigalágum andstæðingi. Helgi var undir smá pressu en varðist vel og hefði jafnvel átt einhverja séns í lokin með vel tímasettum …g5 leik sem hefði getað sett hvítan í smá leikþröng. Jafnteflið samt gott fyrir liðið og fínn sigur í hús.

Eins og áður sagði heilt yfir nokkuð gott þar sem nánast enginn af okkar mönnum var í taphættu.

Kvennaflokkur – Tajikistan

Lenka virtist fá nokkuð þrengri og erfiðari stöðu í byrjuninni Nadezhda virtist tefla nokkuð vel. Seint í skákinni átti Lenka líklega að halda jafnteflinu en ég held að drottningarkaup á c4 í lokin haldi á svart en þó auðvitað enn eitthvað betra á hvítt. Nadezhda er greinilega betri en stigin segja til um og er að ég held kona Farrukh Amonatov sem hefur komið mikið að æfingum íslenska liðsins með fyrirlestrum á netinu.

Jóhanna tefldi traust en þegar staðan bauð upp á það fór hún í dýnamískar aðgerðir. Abrorova notaði tíma sinn mjög illa og Jóhanna var að setja pressu bæði á stöðuna og á klukkuna. Í lokin hafði Jóhanna góðan sigur en mátþema-perrinn í mér hefði viljað sjá 39.Bd4! þó það hafi í raun engu máli skipt.

Viðureignin réðist að mestu leiti á 3ja borði. Hallgerður tefldi Caro-Kann að vanda og náði að véla peð af andstæðingi sínum í miðtaflinu. Hvítur spriklaði eitthvað en alltaf virtist undir stjórn en þá kom reiðarslag þegar Hallgerður þurfti að glíma við að vera í mátneti eftir De4! og varð að gefa lið. Skiptamun undir hlýtur staðan að vera gjörtöpuð en Hallgerður af sinni alkunnu hörkur barðist með kjafti og klóm og á endanum hafði hún jafntefli. Með smá herkjum hefði jafnvel mátt setja tímapressu á andstæðinginn með drottningu og riddara gegn drottningu og peði en auðvitað er sú staða jafntefli.

Tinna hafði eitthvað betra tafl en náði ekki að fá nægjanlega vinningssénsa. Hróksendataflið var alltaf dautt en mistökin voru líklega fyrr þegar Tinna skipti upp á biskup fyrir frekar vonlítinn riddara svarts. Eftir það voru jafntefli nánast einu mögulegu úrslitin.

2-2 jafntefli því niðurstaðan sem eru smá svekkjandi úrslit miðað við elóstig en eins og viðureignin þróaðist voru úrslitin viðunandi.

Næst á dagskrá Guatemala sem eru mun stigalægri og hér hreinlega verður kvennaliðið að ná sér í sannfærandi sigur og enda svo mótið vel!

Í opnum flokki bíður lið Serbíu. Mig minnir að við höfum tekið jafntefli við þá síðast og tel okkur eiga möguleika í þessari viðureign á að gera þetta að mjög góðu móti.

Fram til sigurs!

- Auglýsing -