NM ungmenna hófst í Helsingborg í Svíþjóð í morgun. Teflt og gist er á Scandic Helsingborg Nord hótelinu sem er nyrst í borginni. Aðstæður á mótsstað eru til fyrirmyndar og fer ágætlega um keppendur og fylgdarfólk á hótelinu. Helst hefur hitinn angrað fólk, en hann hefur slagað upp í 30 °C yfir daginn. Það eru því vel heit hótelherbergi sem bíða keppenda á kvöldin.
Íslenski hópurinn samanstendur af eftirtöldum liðsmönnum:
A-flokkur:
– Vignir Vatnar Stefánsson (2445)
– Alexander Oliver Mai (2158)
B-flokkur
– Benedikt Briem (2223)
– Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2174)
C-flokkur
– Ingvar Wu Skarphéðinsson (1875)
– Gunnar Erik Guðmundsson (1857)
D-flokkur
– Mikael Bjarki Heiðarsson (1701)
– Guðrún Fanney Briem (1514)
E-flokkur
– Jósef Omarsson (1617)
– Sigurður Páll Guðnýjarson (1462)
Þjálfarar og fararstjórar hópsins eru Helgi Ólafsson og Björn Ívar Karlsson.
Í A-flokki hefur allt gengið samkvæmt áætlun. Vignir Vatnar og Alexander Oliver unnu báðar skákir sínar í dag, af miklu öryggi. Þeir hafa báðir svart í 3. umferð á morgun, gegn Svíum, og munu tefla hlið við hlið. Það verður því hálfgerð landskeppni á efstu borðunum í fyrramálið.


Í B-flokknum byrjuðu Benedikt Briem og Aleksandr af krafti í morgun með sigrum. Aleksandr vann sveiflukennda skák gegn honum efnilega Færeying, Luitjen Apol Akselsson.
Þeir voru svo heldur ólánssamir í síðari skákum dagsins og töpuðu báðir. Benedikt og Aleksandr mætast í 3. umferð í fyrramálið.


Í C-flokki hefur Ingvar Wu byrjað af miklum krafti og unnið báðar skákir sínar. Gunnar Erik náði sér ekki á strik í dag og tapaði báðum sínum skákum.

Í D-flokknum töpuðu Mikael Bjarki og Guðrún Fanney fyrri skákum dagsins en komu bæði til baka af miklum krafti með sigrum í seinni skákunum. Guðrún Fanney heldur áfram að vekja athygli fyrir langar baráttuskákir. Hún hóf daginn á 5 tíma skák og var síðust að klára.


Í E-flokki hafa Jósef og Sigurður Páll byrjað vel. Þeir unnu báðir örugga sigra í morgunumferðinni. Félagarnir mættust svo innbyrðis í seinni skák dagsins, tefldu mjög langa baráttuskák sem lauk með skiptum hlut að lokum.

Allar skákir mótsins eru sýndar í beinni útsendingu. Skákir D- og E-flokks eru sendar út með myndavélatækni og eru hönnuðir tækninnar staddir á skákstað til þess að kynna – og reyna að selja – búnaðinn. En talsverðir hnökrar hafa verið á útsendingunni og beina útsendinginni virðist frjósa í tíma og ótíma. Þeir hafa því ekki enn náð að selja mér tæknina sína.
Keppnin heldur áfram í fyrramálið, þegar 3. umferð fer fram, kl. 08:00 að íslenskum tíma.
Pörun íslensku keppendanna er þessi:

Mótið á Chess-results
Beinar útsendingar














