Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hófst í gær. Teflt er í a-flokki og opnum flokki. Það bar helst til tíðinda í fyrstu umferð að Björn Hólm Birkisson (2108) vann Íslandsmeistara síðustu tveggja ára og stórmeistarann Hjörvar Stein Grétarsson (2542). Tveir stórmeistarar taka þátt en auk Hjörvars er Bragi Þorfinsson (2408) meðal keppenda.
A-flokkur
Úrslit 1. umferðar
- Bragi Þorfinnsson (2408) – Þorvarður F. Ólafsson (2146) 1-0
- Björn Hólm Birkisson (2108) – Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) 1-0
- Arnar Milutin Heiðarsson (2020) – Alexander Oliver Mai (2135) 0-1
- Lenka Ptácníkova (2051) – Eiríkur Björnsson (1939) 1-0
- Benedikt Briem (2183) – Gauti Páll Jónsson (2086) Frestað
Önnur umferð fer fram á föstudagskvöldið. Þá mætast meðal annars Bragi og Björn Hólm. Hjörvar mætir Arnari Milutin.
Opinn flokkur
25 keppendur taka þátt. Úrslit í fyrstu umferð voru að mestu hefðbundin, þ.e. hinir stigahærri unnu þá stigalægri.
- Auglýsing -
















