Grænlandssjóður valdi í ár að styrkja Skákdeild Fjölnis til að heimsækja höfuðstað landsins Nuuk og efna þar til skákviðburða. Þeir Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis og FIDE meistarinn Róbert Lagermann skipulögðu þétta dagskrá viðburða í samstarfi við Nils Christian Skou formann skákfélagins í Nuuk. Með þeim Helga og Róbert voru í leiðangrinum þau Sóley Kría, Aron Örn og Arnar Gauti sem öll eru nemendur í 9. bekk. Flogið var með vél Icelandair til Nuuk og við komuna tók Geir Oddsson aðalræðismaður Íslands á Grænlandi á móti hópnum og bauð þeim gistingu í ræðismannsbústaðnum.

Fjölnishópurinn mætti á skákæfingar hjá skákklúbbnum í Nuuk þar sem Róbert Lagermann sinnti fræðslu og lagði fyrir skákþrautir. Hópurinn heimsótti ASK grunnskólann og bauð þar upp á taflmennsku og skákkennslu. Örtröð nemenda myndaðist strax við skákborðin og færri áhugasamir komust að en vildu.

Skákdeild Fjölnis og Skákklúbburinn í Nuuk efndu til skákviðburða á torgi verslunarmiðstöðvarinnar Nuuk Center á laugardegi og sunnudegi. „Landskeppni“ fyrri daginn við lögreglumenn í Nuuk og Filippseyinga sem eru nokkuð margir búsettir á Grænlandi. Síðari daginn var haldið skákmót og fjöltefli á torginu.Góð þátttaka var í skákinni og fjöldi áhorfenda fylgdist með báða dagana.

Loks var komið á heimsókn á byggingarsvæði ÍSTAK í miðbæ Nuuk. Ístaksmenn reisa þar mikið byggingarmannvirki er hýsa mun grunn-og leikskóla auk þess sem þar verður menningarmiðstöð bæjarrins staðsett. Úti á byggingarsvæðinu var komið fyrir töflum og skellt á skákmóti milli Fjölnis-ungmenna og starfsmanna Ístaks. Táknrænn viðburður – því að draumur grænlenskra skákáhugamanna er að við nýja skólann verði skákkennsla sett á námskrá

Til að fylgja „skákkennslu í skólum“ eftir gengu þeir Helgi, Róbert og Nils Christian á fund Lone Nukaaraq Möller fræðslustjóra sem sýndi skákinni mikinn áhuga. Henni voru færð drög að námskrá sem unnin var í samstarfi þessarra tveggja landa.

Grænlands-heimsókn Skákdeildar Fjölnis til Nuuk vakti talsverða athygli í höfuðstaðnum. Í framhaldi af heimsóknum Hróksins víða um Grænland hefur áhuginn á skáklistinni aukist smám saman. Ánægja þeirra nemenda sem Fjölnismenn hittu var mjög mikill á að tefla. Ekki er ólíklegt að Skákdeild Fjölnis komi á föstum samskiptum við skóla og skákmenn á Grænlandi.















