
Þó að Bragi Þorfinnsson hafi átt gott forskot fyrir tvær síðustu umferðir Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur og unnið allar skákir sínar er sigurinn á mótinu þó ekki í höfn því í lokaumferðunum átti hann að tefla við þá sem næstir komu, Alexander Oliver Mai, sem var einn í 2. sæti með sex vinninga af sjö mögulegum, og við Íslandsmeistarann, Hjörvar Stein Grétarsson, sem var með 5½ vinning fyrir umferð gærkvöldsins. Hjörvar Steinn hefur verið duglegur við að tefla á mótum innanlands og því gefið yngri skákmönnum kost á að etja kappi við öflugan stórmeistara, hefur misst 1½ vinning gegn þeim Birni Hólm Birkissyni og Alexander Oliver Mai.
Keppendur í A-flokki eru tíu talsins og undir er titillinn Skákmeistari TR, sem hvorki Bragi né Hjörvar geta unnið því að þeir eru ekki félagsmenn í TR, og stendur baráttan því milli Alexanders Olivers og Björns Hólm.
Í Opna flokknum er Ingvar Wu Skarphéðinsson efstur með sex vinninga af sjö mögulegum. Jóhann Arnar Finnsson kemur næstur með 5½ vinning.
Yfirburðir Magnúsar Carlsens á kynslóðamótinu
Magnús Carlsen hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna samskipta hans við Hans Niemann. Hann gaf strax skákina við Bandaríkjamanninn í 5. umferð Kynslóðamóts Juliusar Baers en tók svo til óspilltra málanna gegn öðrum þátttakendum og hlaut 12 vinninga af 15 mögulegum og þetta var hans eina tap. Af 16 keppendum komust átta efstu í útsláttarkeppni. Ekki var loku fyrir það skotið að Magnús þyrfti að kljást við Niemann, sem varð í 4. sæti, á einhverjum stigum úrslitakeppninnar en í fyrstu umferð féll Niemann úr leik en Magnús vann Aronjan 3:1 og átti í gær að tefla við Vincent Keymer í undanúrslitum.
Þjóðverjinn ungi sló út eina af hetjum Indverja í átta manna úrslitum, 3:1.
Julius Baers – kynslóðamót; 1. skák:
Keymer – Praggnanandhaa
Í þessari stöðu liggur fyrir að svartur er að vinna baráttuna á drottningarvæng en kóngsstaðan er viðkvæm og Keymer knúði fram sigur með nokkrum hnitmiðuðum leikjum:
41. h6! Hxc3
41. … g6 42. h7+ Kh8 43. Dh6 kemur á sama stað niður.
42. h7+ Kh8 43. Rgxf7+!
– og svartur gafst upp, 43. … Rxf7 er svarað með 44. Rg6 mát.
Eins og fram hefur komið tjáði Magnús Carlsen sig um það mál sem vakið hefur heimsathygli sl. miðvikudag – en áfram í dylgjustíl. Að þessu sinni var þjálfari Niemanns, Maxim Dlugy, skotmarkið. Dlugy varð heimsmeistari unglinga árið 1985 og átti sæti í bandaríska ólympíuliðinu um skeið. Hann er einn þeirra sem settir hafa verið út af sakramentinu á Chess.com-vefnum vinsæla. Þess er að vænta að Alþjóðaskáksambandið, FIDE, muni fljótlega senda frá sér yfirlýsingu um málið.
Vignir Vatnar í 2. sæti í Slóveníu
Vignir Vatnar Stefánsson, sem stefnir að stórmeistaratitli, varð í 2. sæti á opnu skákmóti í Nova Gorcia í Slóveníu sem lauk sl. fimmtudag. Vignir fékk 6½ vinning af níu mögulegum en gat með sigri í lokaumferðinni náð árangri upp á u.þ.b. 2.600 elo-stig en hafði þó ekki teflt við nægilega marga stórmeistara til að úr yrði fullgildur áfangi. Vignir mun tefla á HM unglinga 20 ára og yngri í Sardiníu á Ítalíu í næsta mánuði. Birkir Ísak Jóhannsson verður einnig meðal keppenda þar.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 24. september 2022.
















