Nodirbek Abdusattorov að tafli í Hörpu. Mynd: Gerd Densing.

Í gær lauk seinni keppninni á LiChess um sæti á Heimsmeistaramótinu í Fischer-slembiskák. Úsbekinn Nodirbek Abdusattorov vann Anish Giri í úrslitum og tryggði sér þar með sjöunda lausa sætið.

Abdusattorov leiddi ólympíuliði Úsbeka sig sigur á Ólympíuskákmótinu í Chennai. Hann er auk þess núverandi heimsmeistari í atskák. Hann er til alls líklegur á mótinu.

Þar með er ljóst hverjir ssjö af átta keppeendum mótsins verða. Ekki liggur fyrir hvern Arkady Dvorkovich, forseti FIDE, velur sem áttunda keppenda mótsins.

  1. Wesley So – heimsmeistari í Fischer-slembiskák
  2. Magnús Carlsen – heimsmeistari í skák
  3. Hjörvar Steinn Grétarsson – val skipuleggjenda
  4. Vladimir Fedoseev – undankeppni á Chess.com
  5. Matthias Bluebaum – undankeppni á Chess.com
  6. Hikaru Nakamura – undankeppni á LiChess
  7. Nodirbek Abdusattorov- undankeppni á LiChess
  8. Val forseta FIDE

Sem fyrr auglýsa mótshaldarar eftir sjálfboðaliðum. 

- Auglýsing -