Team Iceland gegn Nígaragúa (Hraðskák 5/2)

    0
    1250
    Hvenær:
    26. ágúst, 2018 @ 18:00 – 18:30
    2018-08-26T18:00:00+00:00
    2018-08-26T18:30:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    Vináttukeppni vegna þátttöku “Team Iceland” í Live Chess World League. Liðið þarf að ljúka fjórum vináttukeppnum áður en deildin hefst.

    Nígaragúa verður fyrsta liðið sem við mætum í undirbúningi fyrir LCWL sem hefst í október. Þeir eru með fámennt lið og tefla því aðeins á 10 borðum eða kannski aðeins fleiri. Þeir áttu ekki lið í bullet keppni.

    Það er ekki sjálfgefið að allir sem vilja fái andstæðing í þessari viðureign. Engu að síður væri gagnlegt ef sem flestir mættu, skrái sig til leiks og fylgist með hvernig þetta fer fram. Það er fín æfing fyrir öllu stærri viðureign sunnudaginn 2. september, en þá mætum við meistaraliði Úkraínu! Þeir verða með talsvert fjölmennara lið.

    Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-icelandá Chess.com áður en keppnin hefst.

    Tengill á mótið: https://www.chess.com/live#tm=1584

    Dagskráin:

    • 26. ágúst kl. 18:00 – Hraðskák 5/2
    - Auglýsing -