Hraðskákmót Garðabæjar 2022
Hraðskákmót Garðabæjar
Mánudaginn 14. nóvember kl. 19:30.
1. verðlaun 40 þús.
2. verðlaun 15 þús. (ef amk. 20 keppendur)
3. verðlaun 10 þús (ef amk. 30 keppendur)
Verðlaunum er skipt eftir Hort Kerfi en bara 3 efstu fá verðlaun og lögð inn á reikning viðkomandi. Þ.e. ef viðkomandi lendir í skiptu 3-4 sæti, þá er 3. verðlaunum ekki skipt.
Aukaverðlaun
Efsti TG ingur 10.000 kr. (óskipt eftir stigum)
Flokkaverðlaun. 10.000 kr. hver 8 manna flokkur raðaður eftir fide stigum (Hraðskák, Kappskák og Atskák). Flokkaverðlaun eru ekki greidd fyrir stigahæstu 8-15 manns í mótinu. Þe. amk. 8 manns eru í efstu stigagrúppu og eru því að keppa einungis um aðalverðlaun en ekki flokkaverðlaun.
Td. ef 44 keppendur. Þá eru 32 stigalægstu keppendurnir í 8 manna stigahópum sem keppa um þessi aukaverðlaun. Alls 4 hópar.
Tímamörk 3 mínútur + 2 sek á leik.
Tefldar eru 9 umferðir og mótið er reiknað til hraðskákstiga.
Kaffi á könnunni í boði félagsins
Þátttökugjöld 3000 kr.
Félagsmenn Taflfélags Garðabæjar sem hafa greitt félagsgjöld 2022 greiða 2000 kr.
Þátttakendur í Skákþingi Garðabæjar 2022 greiða 2000 kr. Verðlaunahafar fá frítt.
Þátttakendafjöldi er takmarkaður við 70 manns.
Mótsstaður
Safnaðarheimili Vídalínskirkju. Kirkjulundi Garðabæ.
Skráning: https://forms.gle/NJU7u1QxBvthjvxs9
Skráðir:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/159sSrLhcVnD5vF7DAiD5xwLEreRpHs5rYOLLQxuL4Es/edit?usp=sharing
Mótið á chess-results












