Öllum skákum áttundu og næstsíðustu umferð Sinquefield-mótsins lauk með jafntefli. Hátt jafnteflishlutfall einkennir mótið en 34 skákum af 40 hefur lokið með jafntefli.
Fabiano Caruana (2822) er því sem fyrr efstur og háflum vinningi á undan fjórum keppendum þar með talið Magnúsi Carlsen (2842) sem gerði jafntefli við Mamedyarov (2801).
Staðan

Mótið er hluti af Grand Chess Tour og fjórir efstu í heildarkeppninni keppa til úrslita í janúar. Þar er spenann mikil og sá eini sem er öruggur um sæt er Nakamura (2777) þrátt fyrir slagt gengi í St. Louis.

Lokaumferðin hefst kl. 18 í kvöld. Caruana teflir við Wesley So (2780) og Carlsen við Nakamura.
Sjá nánar á Chess.com
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (kl. 18)
- Auglýsing -
















