Átján keppendur mættu til leiks á Hólmsvöll við Keflavík þann 25. ágúst sl. Ekki var teflt að þessu sinni, en skákstig manna látin ráða skákþætti keppninnar.

Efstu menn að skákstigum:

  1. Helgi Ólafsson 2510
  2. Jón L Árnason 2449
  3. Þröstur Þórhallsson 2422
  4. Karl Þorsteins 2421
  5. Halldór Grétar Einarsson 2272
  6. Andri Áss Grétarsson 2268

Efstu menn í golfinu:

  1. Guðmundur Sigurjónsson 78högg (perf:2350)
  2. Siguringi Sigurjónsson 86 högg (perf:2182)
  3. Halldór Grétar Einarsson 91 högg (perf:2088)
  4. Eyjólfur Bergþórsson 93 högg (perf:2022)
  5. Sólon Siguringason 86 högg af rauðum teig (perf:2000)
  6. Karl Þorsteins 95 högg (perf:1975)

Þegar lagt er saman og deilt þá kemur í ljós að Karl Þorsteins náði bestum árangri og er því Íslandsmeistari 2018. Ljóst er að spennan um titilinn verður mikil næstu árin og hvert högg í golfinu getur ráðið úrslitum. Einnig er ekkert verra að hugsa vel um skákstigin sín !

En úrslit mótsins urðu eftirfarandi (meðaltals árangur í golf&skák):

Íslandsmeistari skákmanna í golfi 2018

  1. Karl Þorsteins 2198
  2. Halldór Grétar Einarsson 2180
  3. Helgi Ólafsson 2142,5
  4. Siguringi Sigurjónsson 2126,5
  5. Jón L Árnason 2124,5
  6. Guðmundur Sigurjónsson 2115
  7. Pálmi Ragnar Pétursson 2046

Unglingameistari skákmanna í golfi 2018

Sólon Siguringason var efstur í unglingakeppninni. Mynd: Halldór Grétar
  1. Sólon Siguringason 1636,5
  2. Kári Siguringason 1375

Punktameistari skákmann 2018

  1. Siguringi hlaut flesta punktanna.

    Sólon Siguringason 36 punktar

  2. Siguringi Sigurjónsson 34
  3. Halldór Grétar Einarsson 34

Púttmeistari

  1. Einar og Jón voru góðir í stutta spilinu.

    Jón L Árnason 29 pútt

  2. Einar S Guðmundsson 31 pútt
  3. Guðmundur Sigurjónsson 31 pútt

 

Mesta bæting á fyrri árangri

  1. Jón L Árnason úr 2042 í 2124,5

Mótstjóri var Halldór Grétar Einarsson

Nánari upplýsingar á: http://chess.is/golf/

- Auglýsing -