Annarri umferð Evrópumóts ungmenna í Tyrklandi lauk fyrr í kvöld. Íslensku keppendurnir sextán sem hér eru mættir til leiks vekja athygli fyrir einkennisklæðnað sinn en allir keppendur Íslands klæðast sérmerktum bolum frá Henson. Sem fyrr gengur mótshaldið vel og allir virðast sammála um að aðstæður hér eru með þeim bestu sem sést hafa á barna- og unglingamótum.

Birkir, Sigurður Páll, Jósef, Benedikt Briem og Aleksandr unnu allir vel útfærðar skákir í dag. Ingvar Wu og Guðrún Fanney gerðu jafntefli en aðrir töpuðu. Íslensku keppendurnir áttu meira inni en úrslitin gefa til kynna því góðar stöður voru á flestum borðum eftir byrjunarleikina. Matthías Björgvin og Katrín María höfðu til að mynda vinningsstöður sem þau misstu frá sér. Ég held að það megi segja að þrátt fyrir erfiða andstæðinga og harða mótspyrnu séu krakkarnir á góðri leið og eiga töluvert inni. Mikið er lagt á sig í undirbúningi fyrir skákirnar sem skilar alltaf góðri niðurstöðu þegar upp er staðið.

Benedikt Briem vann öruggan sigur í dag gegn Azeranum Isfandiyarli. Hér má sjá skákina:


Veðrið í Antalya í dag var með íslensku sniði, mjög þungbúið, rigning og þrumur og eldingar. Þrátt fyrir það spiluðu nokkrir íslensku keppendanna fótbolta í dag ásamt kollegum sínum frá Slóvakíu, Spáni og Króatíu. Á morgun ætlar sú gula aftur að láta sjá sig. Á staðnum er prýðilegur rennibrautargarður sem keppendur stefna á að skella sér í í fyrramálið. Skáklegur undirbúningur í bland við hressandi hreyfingu er góð blanda.
Pörun 3. umferðar liggur fyrir. Umferðin hefst á morgun kl. 12:00 að íslenskum tíma.

Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Chess-results















