Engilbert og Emilía. Mynd: Daði Ómarsson.
Bikarsyrpa TR II á tímabilinu 2022-23 fór fram helgina 4.-6. nóvember. Eftir 7 umferðir var það Engilbert Viðar Eyþórsson sem endurtók leikinn frá fyrra móti og sigraði aftur með fullu húsi. Í öðru sæti með 5.5 vinning var Emilía Embla B. Berglindardóttir sem hlaut einnig stúlknaverðlaun gull. Þriðja sætið með 5 vinninga féll í hlut Sigurbjarnar Hermannssonar sem varð ofar en næstu menn á stigum.
Fjölnisstúlkur tóku stúlknaverðlauninin.
Jafnar með 3.5 vinning voru Tara Líf Ingadóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir sem hlutu silfur og brons stúlkna.
Taflfélag Reykjavíkur þakkar öllum keppendum fyrir þátttöku í mótinu. Næsta mót í mótaröðinni verður auglýst síðar.
Hluti keppenda á Bikarsyrpu TR
Öllum úrslitum og lokastöðu mótsins má finna í hlekknum hér að neðan https://chess-results.com/tnr692540.aspx?lan=1&art=1&rd=7
- Auglýsing -