Guðlaugur Þór lék fyrsta leik mótsins. Mynd: GB

Íslandsmótið í Fischer-slembiskák hófst í gær á Center Hotels Plaza við Ingólfstorg. Byrjaði mótið á því að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og loftslagsmálaráðherra opnaði mótið og lék fyrsta leikinn í skák Hjörvar Steins og flokkbróður síns Helga Áss.

Dagurinn í dag einkenndist af skemmtilegum og líflegum skákum.

Eftir 5 umferðir af 9 leiðir Hjörvar Steinn með 4 vinninga af 5 mögulegum.

Helgi Áss og Vignir Vatnar eru í 2-3 sæti með 3.5 vinning. Jón Viktor, Þröstur Þórhallsson, Jóhann Hjartarson og Alexandr Domalchuk eru svo í 4-7 sæti með 2.5 vinning.

Ljóst er að baráttan í dag um sæti í úrslitum (efstu fjórir) verður ansi hörð. Síðustu fjórar umferðirnar fara fram í dag og hefst 6. umferð klukkan 14.00.

Úrslitin hefjast svo um leið og níundu og síðustu umferð lýkur.

Chess After Dark ásamt Ingvari Þór Jóhannessyni voru með beina útsendingu frá gærdeginum sem hægt er að nálgast hér:

https://m.twitch.tv/chessafterdark

CAD bræður og Ingvar Þór verða að sjálfsögðu sömuleiðis með beina útsendingu á í dag

Mótið á Chess Results: https://chess-results.com/tnr700410.aspx?lan=1

 

 

- Auglýsing -