Margeir að tafli í næstsíðustu umferð. Mynd: Lars OA Hedlund/heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) vann sænska alþjóðlega meistarann Bengt Lindberg (2349) í níundu og síðustu umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hlaut 6 vinninga og endaði í 8.-19. sæti. Margeir var taplaus á mótinu.

Hann tefldi við fimm keppendur sem voru stigahærri en hann og gerði jafntefli við þá alla. Hann tefldi við fjóra keppendur sem eru stigalægri og hlaut þar 3½ vinning.

Frammistaða hans samsvaraði 2554 skákstigum og hækkar hann um 14 stig fyrir hana.

Alls tefldu 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir var nr. 35 í stigaröð keppenda.

Mótið á Chess-Results

Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefldu báðir í Rilton Elo sem var fyrir stigalægri keppendur.

Adam hlaut 5 vinninga og hækkaði um 127 skákstig! Jósef hlaut 3 vinning og hækkaði um 51 stig. Vel gert hjá þeim bræðrum!

Mótið á Chess-Results. 

- Auglýsing -