Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við þriðja stigahæsta keppenda mótsins, króatíska stórmeistarann Leon Livaic (2572) í áttundu og næstsíðustu umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hefur 5 vinninga og er í 17.-37. sæti.
Níunda og síðasta umferð fer fram í dag og þá teflir Margeir við sænska alþjóðlega meistarann Bengt Lindberg (2349). Umferð dagsins hefst fyrr en venjulega eða kl. 11:15.
Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.
Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Adam vann og Jósef tapaði. Adam hefur 4 vinninga en Jósef hefur 2½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast yfirleitt kl. 14:15)
- Auglýsing -
















