Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) vann tékkneska stórmeistarann Vitezlav Raskik (2427) í 7.  umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær. Hannes hefur 4 vinninga að loknum sjö umferðum og er í 4.-6. sæti.

Í áttundu og næstsíðustu umferð, sem fram fer í dag, teflir Hannes við tékkneska FIDE-meistarann Jakub Kusa (2359).

Hannes teflir í 10 manna flokki þar sem meðalstigin eru 2403 skákstig. Hannes er stigahæstur keppenda.

 

- Auglýsing -