Dagur að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Skákhátíðinni í Kragerö var framhaldið í gær með tveimur umferðum. Alls taka 14 Íslendingar þátt í mótinu. Tíu í a-flokki og 4 í b-flokki. Nærri 10% keppendanna eru  íslenskir.

Stefán Bergsson að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2343) og alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2466) eru efstir íslensku keppendanna með 3 vinninga. Stefán Bergsson (2170) er næstur Íslendinga með 2½ vinning.

Skák þarf ekki alltaf að vera skemmtileg. Gauti Páll að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Gauti Páll Jónsson (2047), Aleksandr, Domalchuk-Jonasson (2336), Benedikt Briem (2096) hafa 1½ vinning.

Stephan Briem að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Lenka Ptácníková,  (2113) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867) hafa 1 vinning, Stephan Briem (2141) hefur ½ vinning og Adam Omarsson (1843) er ekki kominn á blað.

Staðan í a-flokki

Alls taka 102 skákmenn þátt í a-flokki.

Erlingur Jensson að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Í b-flokki hafa Jósef Omarsson (1698) og Unnar Ingvarsson (1717) 2½ vinning. Erlingur Jensson (1583) hefur 2 vinninga og Iðunn Helgadóttir hefur 1½ vinning.

Staðan í b-blokki

Alls taka 64 skákmenn þátt í b-flokki.

Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 9 og 14:30.

——-

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448) vann bandarískan andstæðing í gær eftir 6 jafntefli í röð.

Margeir hefur 5 vinninga. Lokaumferðin fer fram í dag.

171 keppandi frá 29 löndum taka þátt í efstu flokknum. Þar af eru 9 stórmeistarar. Margeir er nr. 11 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -