Dagur að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Skákhátíðinni í Kragerö var framhaldið í gær með umferðum 5 og 6. Alls taka 14 Íslendingar þátt í mótinu. Tíu í a-flokki og 4 í b-flokki. Nærri 10% keppendanna eru íslenskir. Í dag eru tefldar umferðir 7 og 8. Mótinu lýkur með 9. umferð á sunnudaginn.

FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2343) er efstur íslensku keppendanna með 4½ vinning. Tvö góð úrslit í gær. Annars vegar sigur gegn norska alþjóðlega meistaranum Elham Abdurauf (2527) og svo jafntefli gegn litháíska stórmeistaranum Titast Stremavicius (2540). Dagur hefur fína möguleika á að ná í sinn lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Vignir að tafli í Kragerö. Mynd: Facebooksíða mótsins.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2466) er næstur með 4 vinninga eftir tvö jafntefli gegn stórmeisturum í gær. Annars vegar hinum norska Kjetil A Lie (2525) og hins vegar hinum ausurríska Valentin Dragnve (2565).

Stefán Bergsson að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Stefán Bergsson (2170) og Aleksandr, Domalchuk-Jonasson (2336) hafa 3 vinninga. Gauti Páll Jónsson og Stephan Briem (2141) hafa 2½ vinning.

Adam Omarsson náði fínum úrslitum í gær. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Benedikt Briem (2096) og Lenka Ptácníková,  (2113) hafa 2 vinninga. Adam Omarsson (1843) og  og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867) hafa 1½ vinning.

Staðan í a-flokki

Alls taka 102 skákmenn þátt í a-flokki.

Í b-flokki er Jósef Omarsson (1698) efstur Íslendinga með 4 vinninga. Iðunn Helgadóttir hefur 3 vinninga

Unnar Ingvarsson að tafli í Kragerö

Unnar Ingvarsson (1717) og Erlingur Jensson (1583) hafa 2½ vinning

Staðan í b-blokki

Alls taka 64 skákmenn þátt í b-flokki.

Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 9 og 14:30.

——-

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448) vann Þjóðverjann Uwe Kleibel (2219) í lokaumferð Graz Open í gær. Margir vann því tvær síðustu skákirnar og var taplaus á mótinu en gerði of mörg jafntefli eða 6 talsins og þau öll í röð!

Margeir hlaut 6 vinninga og endaði í 11.-25. sæti.

171 keppandi frá 29 löndum tóku þátt í efsta flokknum. Þar af voru 9 stórmeistarar. Margeir var nr. 11 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -