Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir Vatnar gerði jafntefli við armeneska FIDE-meistarann Robert Piliposyan (2314). Vignir hefur 4½ vinning og er 134.-209. sæti.
Níunda umferð fer fram í dag. Vignir teflir þá við tyrkneska FIDE-meistarann og jafnaldra sinn Yamac Samani (2357). Vignir hefur hvítt.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -















