Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.

Vignir Vatnar vann tyrkneska FIDE-meistarann og jafnaldra sinn Yamac Samani (2357) í níundu umferð sem fram fór í gær. Vignir hefur 5½ vinning og er 80.-140. sæti.

Tíunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Vignir mætir þá öðrum jafnaldra, einum stigahæsta alþjóðlega meistara heims, Rússanum Rudid Markarian (2557) sem teflir undir fána FIDE. Enda Rússum óheimilt að tefla á mótinu nema að þeir hafi skráð sig undir fána FIDE. Rússar hafa sagt sig úr ECU og gengið í Skáksamband Asíu. Gera má ráð fyrir að fjöldi Rússa muni óska eftir að ganga í annað skáksamband innan Evrópu á næstu mánuðum.

Slóð á beina útsendingu sem hefst kl. 14:15

484 skákmenn taka þátt í mótinu. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.

 

- Auglýsing -