Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) var eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem lauk í gær í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir Vatnar tapaði fyrir tyrkneska stórmeistaranum Vahap Sanal (2590) í elleftu og síðustu umferð.
Vignir hlaut 6 vinninga og er í 143.-214. sæti. Frammistaða Vignis samsvaraði 2486 skákstigum og hækkaði hann um 4 stig fyrir hana.
Vignir heldur nú til Arandjelovac í Serbíu þar sem hann teflirá alþjóðlegu móti sem fram fer 15.-22. mars. Alexander Oliver Mai (2141) tekur einnig þátt í mótinu.
484 skákmenn tóku þátt í mótinu. Þar af voru 126 stórmeistararar. Vignir var nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu áunnu sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -















