Mynd frá útgáfu vorblðasins í fyrrra.

Vorhefti Tímaritsins Skák kom út í dag! Blaðið kemur út tvisvar á ári; á vorin og haustin, í kringum Íslandsmót skákfélaga.

Þeir sem hafa borgað áskriftargjöld Skáksambandsins geta nálgast sitt eintak frítt. Aðrir fá blaðið á 2.500 krónur. Vorheftið 2023 og haustheftið 2022 fást á 3000 krónur saman.

Hægt er að nálgast blaðið á Íslandsmóti skákfélaga um næstu helgi, en einnig á þriðjudagskvöldum í Taflfélagi Reykjavíkur frá klukkan 19:30-22:00, samhliða þriðjudagsmóti.

Hægt er að greiða með millifærslu eða skrifa sig á lista í TR eða um helgina og fá þá kröfu í netbanka. Þeir sem hafa greitt áskriftargjöldin skrifa sig á listann en fá eðli málsins samkvæmt enga kröfu í netbankann.

Þeir sem ekki geta nálgast blaðið í TR á þriðjudagsmótum eða um helgina geta keypt þau með því að velja greiðslutengil hér að neðan. Eintökin verða send í pósti.

Tilgangur blaðsins er að greina frá því helsta í íslensku skáklífi hverju sinni, og vera því heimild um skáksöguna til framtíðar. Einnig eru í blaðinu skýrðar skákir, skáksögulegar greinar, þrautir, myndir, skákferðasögur og ýmsilegt annað tengt íslensku skáklífi.

Brot úr Tímaritinu:

- Auglýsing -