Eftirfarandi tölvupóstur var sendur til aðildarfélaga SÍ í gær, 16. april 2023.

———–

Til aðildarfélaga SÍ

Stjórn SÍ hélt stjórnarfund, 13. apríl.  Fundargerð þess fundar og eldri fundargerðir SÍ má finna hér: https://skak.is/skaksamband/fundargerdir/

Eftirfarandi liggur nú fyrir.

Stjórn SÍ vill koma eftirfarandi á framfæri við aðildarfélög sín.

  1. Landsmótið í skólaskák fer fram á höfuðborgarsvæðinu, 10.-11. júní. nánara fyrirkomulag undankeppna og úrslita kynnt í vikunni með nýrri reglugerð
  2. Aðalfundur Skáksambandsins fer fram 10. júní nk. á höfuðborgarsvæðinu. Formlegt fundarborð verður sent í síðasta lagi 10. maí.
  3. Landliðsflokkur Skákþings Íslands fer fram 15.-25. maí nk. á Ásvöllum í Hafnfarfirði. Flokkurinn er fullskipaður.
  4. Drög af dagskrá nokkurra móta síðsumars og í haust liggur fyrir og er hér ítrekað.  Auðvitað þó með smá fyrirvörum.
  • Áskorendaflokkur Skákþings Íslands (26. ágúst – 3. september)
  • Íslandsmót kvenna (18.-24. september)
  • NM skólasveita (29. september – 1. október)
  • Íslandsmót skákfélaga (12.-15. október)

5. Stjórn SÍ staðfesti ákvörðun sína, sem tekin, var á milli funda, að tillögu landsliðsnefndar SÍ, að Helgi Ólafsson yrði landsliðseinvaldur í opnum flokki og Ingvar Þór Jóhannesson á í kvennaflokki á EM landsliða sem fram fer í Svartfjallalandi, 10.-21. nóvember 2023.

Kveðja,
Stjórn SÍ.

- Auglýsing -