Chess After Dark héldu hraðskákmót á Sportbarnum Ölver föstudagskvöldið 23. Júní við glæsilegar aðstæður.
Um er að ræða síðasta Chess After Dark mótið fyrir sumarfrí áður en úrslitin í mótaröð Bankans Bistro fara fram í haust.
Um 40 skákmenn mættu til leiks og tefldar voru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2
Þrír skákmenn urðu efstir og jafnir með 9 vinninga af 11 mögulegum –
Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson & Halldór Brynjar Halldórsson.
Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson & Halldór Brynjar Halldórsson.

Ákveðið var að slá til úrslitakeppni þar sem Helgi Áss og Halldór Brynjar tefldu Armageddon skák upp á hver myndi mæta Vigni í úrslitum.
Fór það svo að Helgi Áss sigraði Halldór Brynjar og tryggði sér þar með úrslitaskák við Vigni Vatnar.
Vignir Vatnar valdi svartan í Armageddon skákinni á móti Helga Áss og hafði sigur og tryggði sér þar af leiðandi sigur í mótinu.

Skákstjórn var í öruggum höndum Þóris Benediktssonar og Arnars Milutin.
Fyrir hönd Chess After Dark vil ég þakka öllum sem hafa sýnt okkur stuðning með því að mæta á mótin okkar – sömuleiðis vil ég taka fram að CAD hafa haldið þessi skákmót í sjálfboðastarfi og hafa niðurgreitt mótin að stórum hluta úr sínum eigin vasa að undanskildum öllum mótunum sem hafa verið í samstarfi við Óla Val & Bankann Bistro en þau mót hafa alfarið verið fjármögnuð af þeim og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Sjáumst í haust og gleðilegt sumar!
– Birkir Karl Sigurðsson
Mótið á chess-results
- Auglýsing -















