Hannes að tafli í Prag 2020. Mynd: Heimasíða mótsins.

Íslensku keppendunum á alþjóðlega mótinu í Prag gekk vægast sagt illa í 8. umferðinni í dag. Aðeins 1 vinningur kom í hús af 8 mögulegum. Jóhann heldur áfram að rétta úr kútnum í Dortmund og Hannes í fínum málum eftir jafntefli í dag.

Hilmir Freyr Heimsson var einn Íslendinga í beinni útsendingu í dag. Hann hafði svart á þýska FIDE meistarann Marius Deuer (2374). Þjóðverjinn fékk rífandi bætur fyrir peð en spurning er hvort það var óvart eða útaf eigin snilld?! Staða Hilmis hrundi svo undan pressunni en líklegast var 26…b6? of mikil veiking.

Hilmir hefur 5,5 vinninga af 8 og aðeins misst dampinn eftir frábæra byrjun. Aleksandr Domalchuk-Jonasson var eini íslenski keppandinn sem náði í „höfuðleður“ í Prag í dag en hann lagði FM Michael Redzisz (2269) með svörtu. Domalchuk er nú efstur Íslendingana með 6 vinninga og verðurí beinni útsendingu á morgun.

Flestir íslensku keppendana sem eftir er að minnast á fengu stigahærri andstæðing en allir þurftu þeir að lúta dúk. Bárður Örn Birkisson (2179) hefur 4,5 vinning, fjóra vinninga hafa þeir Björn Hólm Birkisson (2121), Davíð Kolka (1959) og Aron Þór Mai (2077).  Alexander Oliver Mai (2128) hefur 3,5 vinning og Jóhann H. Ragnarsson hefur 2,5 vinning.

Íslendingarnir hafa sjö hvíta í átta skákum og rétta vonandi úr kútnum í lokaumferðinni.

Jóhann Hjartarson (2454) heldur áfram að rétta úr kútnum og vann sína skák í dag gegn Michael Strebel (1920). Jóhann hefur 2,5 vinning af 6 mögulegum.

Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli með svörtu við kínverska skákmanninn Xiongjian Peng (2461) með svörtu í 6. umferðinni.

Hannes er enn hálfum vinningi á eftir efstu mönnum og fær hvítt gegn sínum þriðja kínverska andstæðingi í röð, IM Chen Wang (2481).

 

 

 

- Auglýsing -