Aleksandr-Domalchuk Jonasson stóð í ströngu á opnu móti á Spáni í dag en tefld var tvöföld umferð. Aleksandr vann í morgunumferðinni en tapaði í þeirri seinni. Adam vann góðan sigur í Serbíu en Josef tapaði. Iðunn gerði jafntefli í sinni skák en Helgi Pétur tapaði í Varsjá.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2373) teflir þessa dagana á Open Internacional CA MONTEOLIVETE á Spáni. Aleksandr er númer 40 í styrkleikaröð af 227 keppendum.

Í annarri umferð fékk hann svart á franskan skákmann, Dani Halegua (2108). Frakkinn fékk betra skömmu eftir byrjunina og vann peð. Smá ströggl hjá Aleksandr en sem betur fer missteig Frakkinn sig og einhvern veginn náði okkar maður að komast peði yfir.  Aleksandr kláraði svo endataflið nokkuð auðveldlega.

Erfiður sigur og smá „shaky skák“ eins og Aleksandr sagði í samtali við Skak.is en hann tekur sigurinn! Segja má að vinningarnir í fyrstu umferðunum séu réttir en á röngum stöðum!

Í þriðju umferðinni og seinni skák dagsins fékk Aleksandr hvítt á pólska stórmeistarann Igor Janik (2548). Pólverjinn yfirspilaði okkar mann í þessari skák en eitthvað fór úrskeiðis snemma í miðtaflinu og pressan á b3 peðið reyndist erfið. Aleksandr hélt í vonina að endataflið með mislitum biskupum myndi halda en sá pólski átti gegnumbrot og sigldi vinningnum heim.

Aleksandr mætir spænskum skákmannií fjórðu umferðinni á morgun Pablo Luis Aguado Doncel (2028).

Þeir bræður Adam Omarsson (1843) og Josef Omarsson (1710) tefldu þriðju umferðina á Serbia Open í dag.

Adam er á góðu skriði. Hann gerði jafntefli við stigahærri andstæðinga í fyrstu tveimur umferðunum en hafði betra/unnið tafl í þeim báðum. Í dag náði hann hinsvegar að klossmáta CM Damjan Jamdric (2113) óvænt í erfiðu endatafli í mikilli baráttuskák.

Serbinn tefldi af ákveðinni reynslu og fékk mjög fínt „domination“ á svörtu reitunum. Svartur hafði betra lengst af í skákinni en Adam barðist með kjafti og klóm í vörninni.  Í lokin lék svartur skelfilega af sér í vænlegri stöðu og eftir 44.Rf3+ gafst Serbinn upp þar sem 44…fxg4 er svarað með 45.Hg5 og mát!

Adam hefur 2 vinninga af 3 eftir þessa skák.

Josef tapaði sinni skák gegn Dragan Pantovic (2057). Josef hafði svart í kóngsindverja og lenti í smá vandræðum snemma í miðtaflinu sem reyndust erfið að yfirstíga. Tap gegn reyndum andstæðingi.

Josef hefur 0,5 vinning af 3.

Í fjórðu umferð fá þeir báðir Serba, Adam fær svart á FM Nened Ravic (2210) en Josef fær hvítt á Miroljub Jevtic (1963). Jevtic er sjötugur þannig að alvöru aldursmunur þarna á ferð!

UPPFÆRT: Vegna mistaka skákstjóra og rangan innslátt úrslita fær Adam nýjan andstæðing. FM Liev Kurmangaliyeva (2225).

Iðunn Helgadóttir (1646) hefur setið að tafli í B-flokki á Najdorf minningarmótinu í Varsjá ásamt Helga Pétri Gunnarssyni (1723). Þau höfðu bæði 3 vinninga að loknum 7 umferðum.

Í áttundu umferðinni mætti Iðunn Grzegorz Piotrowski (1835) og endaði skákin með jafntefli. Helgi tapaði fyrir Jakub Drozdz (1643).

Í lokaumferðinni teflir Iðunn enn upp fyrir sig og fær Pólverjann Wojciech Radecki (1825). Helgi fær Pawel Podzorski (1625).

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -