Helgi Áss vann í fimmtu umferð í A-flokki í Pardubice og Sigurður Ingason vann einng sína skák í B-flokki. Stefán Bergsson fer ekki vel af stað á lokuðu móti á Englandi.
Helgi Áss Grétarsson (2475) teflir á Czech Open í Pardubice. Helgi er númer 15 í styrkleikaröð af 292 keppendum. Helgi hafði 4 vinninga af 5 fyrir umferð dagsins.
Helgi mætti Pólverjanum Franciszek Semecki (2309) í 6. umferðinni og stýrði hvítu mönnunum. Úr varð nokkuð hefðbundin drottningarpeðsbyrjun þar sem hvítur er að „juða“ aðeins í svörtu stöðunni.
Stoðirnir fór að bresta hjá svörtum í 21. leik þegar hann lék slökum leik, 21…Re4? Helgi gaf hvítreitabiskupinn fyrir riddarann 22.Bxe4 dxe4 og fékk eitraðan hrók í staðinn 23.Hd7!
Segja má að í kjölfarð hafi Pólverjinn framið einhverskonar rað-harakiri þar sem hver þvælu leikurinn á fætur öðrum gerðu Helga lífið auðvelt. Loks leyfði Pólverjinn Helga að máta sig.
Helgi hefur því 5 vinninga af 6 mögulegum og er hálfum vinningi frá efstu mönnum. Helgi er í 3-7. sæti og teflir á þriðja borði á morgun. Helgi hefur svart á þýska FIDE meistarann Michael Coenen (2295).

Sigurður Ingason (1721) tefli i B-flokki á Czech Open í Pardubice. Sigurður er númer 138 í styrkleikaröð af 279 keppendum.
Í sjöttu umferð mætti hann Þjóðverjanum Stefan Leppert (2046) og vann. Góður sigur hjá Sigurði sem er þá með 3,5 vinning af 6 mögulegum.
Michael Dome (1939) frá Tékklandi býður Sigurðar í sjöundu umferðinni.

Stefán Bergsson (2169) tekur þátt í lokuðum flokki á Englandi. Stefán er fjórði stigahæsti keppandinn í nokkuð jöfnum flokki. Teflt er nokkuð ört og yfirleitt tvær skákir á dag. Stefán vann sigur í fyrstu umferðinni en hefur verið heillum horfinn síðan og tapað fjórum skákum í röð.
Hér að neðan eru skákir Stefáns úr fyrstu fjórum umferðunum. Hann vann fyrst gegn Makepeace með því einmitt að semja ekki um neinn frið heldur fara í sleggju-boxbardaga þar sem Stefán hafði betur.
Í 2. umferð ætlaði Stefán að mæta afbrigði sem Healey teflir að jafnaði en Healey breytti til og lenti Stefán væntanlega í að þekkja ekki nýmóðins lykilafbriðgið b4 hjá hvítum.
Gegn Taylor í 3. umferðinni fékk Stefán fínt úr byrjuninni en náði ekki að hamra járnið og missti þráðinn.
Í 4. umferð gegn Hill fékk Stefán svo fína séns snemma í miðtaflinu en náði ekki að nýta færin og hvítur sneri taflinu sér í vil.
Svekkjandi byrjun hjá Stefáni en hann hefur karakterinn í að snúa mótinu. Það byrjar á einni skák í einu eins og Stefán veit!
Á morgun fær Stefán svart á Svíann Daniel Johnson (2224) og hvítt á hina ensku Zoe Varney (2020)
















