Í dag fóru fram bráðabanar á Heimsbikarmótinu í Baku. Í kvennaflokki réðust úrslit þar sem Goryachkina náði sér í Heimsbikarmeistaratitil eftir spennandi einvígi við öskubuskuna Salimovu sem náði ekki að yfirgefa ballið fyrir miðnætti.
Rameshbabu Pragganandhaa er kominn í úrslit á móti Magnus Carlsen. Indverjinn ungi hafði betur á móti Fabiano Caruana í spennandi og skemmtilegu einvígi.
Fabiano Caruana (2782) – Rameshbabu Pragganandhaa (2707)
Fabiano fékk hvítt í fyrstu bráðabanaskákinni þar sem teflt var með 25+10 tímamörkum. Hann náði að byggja upp fína pressu eftir þungt miðtafl í ítalska leiknum. Pressan skilaði góðu endatafli og Fabiano stóð til vinnings.
Hér gerði Caruana sig sekan um risastór mistök. Hann lék 55.f4?? og hélt hann hefði allan tímann í heiminum. Þetta voru hinsvegar lykilmistök og hvítur tapar fjölmörgum lykiltempóum eins og framhald skákarinnar sýnir. Hvítur átti einfaldlega að leika 55.a6 og vinnur. Svartur hefur ekki tíma í 55…Hxf2 þar sem hvítur er mun fljótari en í skákinni. Furðuleg mistök hjá jafn sterkum skákmanni.
Seinni bráðabanaskákin var þétt en týpískt 0.00 skák, tölvumatið fór aldrei langt frá „miðjunni“ og jafntefli rökrétt úrslit á vel tefldri skák. Ljóst að úrslit myndu ráðast í hraðari skákum!
Í 10+10 einvíginu byrjaði Pragganandhaa með hvítu mennina. Enn var ítalski leikurinn á boðstólnum. Upp kom staða með mislitum biskupum sem virkaði auðteflanlegri á hvítt og er það líklega ástæðan fyrir því að Caruana gaf peð. Peðstapið var reyndar akkúrat línan sem tölvurnar stinga upp á en peð er samt alltaf peð!.
Pragga náði svo að veikja og umkringja peð á e3 og eftir að Pragga vann peðið var hann orðinn tveimur peðum yfir. Vissulega voru mislitir biskupar en Pragga lét þetta líta út eins og þvingaðan vinning á hvítt.
Caruana nú kominn með bakið upp við vegg og varð að vinna með hvítu mönnunum. Aftur og nýbúnir tefldu þeir ítalska leikinn. Pragga nýtti sér að jafntefli var nóg og fann kröftugar peðaframrásir til að einfalda taflið. Caruana fann í raun engar leiðir til að búa til vandamál fyrir Indverjann sem satt best að segja hafði betra tafl lengst af. Pragga auðvitað nýtti sér það og einfaldaði stöðuna í steindautt jafntefli.
Sanngjarn sigur að mörgu leiti hjá Indverjanum en Caruana gæti misst smá svefn yfir úrvinnslunni í fyrri 25+10 skákinni.
Við fáum því úrslit sem flestir vildu, Carlsen gegn nýju kynslóðinni. Létt könnun á Facebook síðu íslenskra skákmanna sýndi að yfir 80% vildu frekar sjá Pragga mæta í úrslitin á móti Magnus Carlsen! Ósk þeirra hefur verið uppfyllt!
Kvennaflokkur
Alexandra Goryachkina (2504) – Nurgyul Salimova (2403)
Salimova brenndi af í algjöru dauðafæri í gær, var tveimur peðum yfir í endatafli en sú rússneska náði að verjast. Ef Salimova nagaði neglur eftir þá skák, þá var lítið eftir að naga eftir fyrri 25+10 skákina. Salimova og Abasov voru svo sannarlega stjörnur mótsins og á daginn kom að þau höfðu verið að stúdera saman. Þess vegna ætti það e.t.v. ekki að koma á óvart að Salimova hafi beitt London-kerfinu í lykilskák. Abasov beitti London með mjög góðum árangri á mótinu.
Í fyrri skákinni tefldi Salimova eins og engill framan af skák og eftir sterkan taktískan leik 20.b4! var hún komin með alla stöðuna.
Svartur getur ekki tekið á b4 vegna drottningarskákar á d7. Hvítur fékk því vænlegan 2+1 peðameirihluta á drottningarvæng og þrælvaldaðan riddara á c6. Gríðarlegir stöðuyfirburðir…sú búlgarska bætti svo bara í!
Hér hefur hvítur tvö samstæð frípeð og að jafnaði ætti þetta að vera kolunnið tafl. Það hefur hinsvegar verið eitthvað þema á þessu móti í lykilskákum að tvö peð hafa ekki dugað til. Goryachkina náði að redda sér.
Líklegast hefur Salimova misst af 37…g6 hér. Goryachkina náði þráskák og miklu seiglujafntefli.
Í seinni skákinni náði Goryachkina loks að finna leið til að skilja á milli. Catalan-byrjunin var í boði og Salimova valdi nýtísku línu þar sem svartur gefur peð en heldur oft jafntefli með bestu taflmennsku. Ef eitthvað klikkar í vörninni situr svartur hinsvegar í einhverskonar þjáningu peði undir í löngu endatafli. Það var nákvæmlega það sem gerðist og Goryachkina náði að láta umframpeðið telja. Sú rússneska er Heimsbikarmeistari kvenna 2023
Enn og aftur, Salimova má vel við una og sæti í áskorendamóti kvenna hlýtur að vera framar björtustu vonum. Hér er klárlega á ferðinni ung skákkona sem rétt að að fylgjst vel með!
Goryachkina won Women's World Cup after beating Salimova : 2.5 – 1.5 #chess #FIDEWorldCup #Goryachkina #Salimova pic.twitter.com/O7beCOJe4T
— Chess news (@usefulchess) August 21, 2023
The FIDE Women's World Cup concluded today with the prize-giving ceremony!
Congratulations to the winner, 🏆 Aleksandra Goryachkina, 🥈 Nurgyul Salimova (runner-up), and 🥉 Anna Muzychuk (third place). #FIDEWorldCup
📷 Stev Bonhage pic.twitter.com/oj3lSxPTdU
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 21, 2023
Á morgun höldum við áfram, úrslitaeinvígið á Heimsbikarmótinu. Magnus Carlsen gegn Rameshbabu Pragganandhaa!
Útsending dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna
















