Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

—–

Andrey Prudnykov, vann sigur á síðasta þriðjudagsmóti TR.. Sjá nánar á heimasíðu TR.

—–

Minnt er á hægt að er að nálgast á Tímaritið Skák á þriðjudagsmótum TR.

Nánar um blaðið. 

————–

Hægt er að ná í ókeypis íslenskar skákbækur í boði Skáksambands Íslands á þriðjudagsmótum TR. Hér má sjá mynd af þeim titlum sem eru í boði.

- Auglýsing -