Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mætti Ingvar Þór Jóhannesson í þáttinn. Í kynningu um þáttinn segir:
Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákfréttaritari kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um það helsta sem er að gerast í skákheiminum í dag, nýjustu fréttir, bæði hér heima og erlendis. Þeir fjölluðu um nýlokið heimsbikarmót þar sem fyrrverandi heimsmeistari stóð uppi sem sigurvegari, heimsmeistaramót liða í Þýskalandi, sátt í stóra svindlmálinu þar sem Magnus Carlsen ásakaði Hans Niemann um að hafa svindlað gegn sér á Sinquefield skákmótinu í fyrra, nýkjörna formenn hjá nokkrum íslenskum skákfélögum, félagaskipti nokkurra sterkra leikmanna til Taflfélags Vestmannaeyja, Áskorendaflokk sem nú stendur yfir í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeninu og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.
Þáttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

















